Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Félagsmálaráð - 1416. fundur

í Fannborg 6, fundarherbergi 3. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Gunnsteinn Sigurðsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Gunnsteinn Sigurðsson - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Ragnheiður S Dagsdóttir - aðalfulltrúi
  • Sverrir Óskarsson - aðalfulltrúi
  • Helga Sigrún Harðardóttir - aðalfulltrúi
  • Kristín Sævarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Arnþór Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Ólöf Pálína Úlfarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Aðalsteinn Sigfússon - félagsmálastjóri
  • Anna Klara Georgsdóttir - verkefnastjóri
  • Guðlaug Ósk Gísladóttir - yfirmaður þjónustudeildar fatlaðra

Ritari

  • Anna Klara Georgsdóttir

Sverrir Óskarsson stýrði fundi í fjarveru Gunnsteins Sigurðssonar.

Dagskrá fundar

01

Teymisfundir 34 og 35

Lagt fram.

Berglind Kristjánsdóttir félagsráðgjafi sat fundinn undir þessum lið.

02

Fjárhagsaðstoð. Áfrýjun

Fært í trúnaðarbók.

Berglind Kristjánsdóttir félagsráðgjafi sat fundinn undir þessum lið.

03

Móttaka flóttafólks. Samantekt

Margrét Arngrímsdóttir verkefnisstjóri greindi frá stöðu mála.

Félagsmálaráð þakkaði fyrir samantektina og óskar fjölskyldunum og starfsfólki áframhaldandi velfarnaðar.

04

Umsagnarmál. Stuðningsfjölskylda

Félagsmálaráð samþykkti umsókn um leyfi til að gerast stuðningsfjölskylda.

Guðlaug Ósk Gísladóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.

05

Framkvæmdaráætlun í málefnum fatlaðs fólks. Stöðumat

Lagt fram.

Guðlaug Ósk Gísladóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.

06

Atvinnumál fatlaðra.

Greinargerð vegna fyrirspurnar og fylgigögn.

Lagt fram.

Félagsmálaráð þakkar fyrir góða skýrslu og hvetur sviðið til að vinna áfram að stefnumótun og framþróun vegna atvinnumála fatlaðs fólks í sveitarfélaginu.

Lagt er til að gerð verði frekari þarfagreining á þeim hópi sem nýtir dagþjónustu og vinnustaði fatlaðs fólks svo að unnt verði að finna viðeigandi húsnæði í framhaldinu, en m.a. í ljósi fyrirhugaðra flutninga bæjarskrifstofu er það mjög brýnt.

Óskað er eftir því að málið verði tekið upp á ný að tveimur mánuðum liðnum.

Guðlaug Ósk Gísladóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.

07

Heimaþjónusta. Áfrýjun

Fært í trúnaðarbók.

08

Reglur um félagslega heimaþjónustu. Breyting á 2.gr.

Lögð var fram tillaga að breytingu á 2.gr.

Afgreiðslu frestað.

09

Starfshópur um stöðu húsnæðismarkaðarins

Arnþór Sigurðsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Óskað er eftir upplýsingum um fyrirhugaðar aðgerðir í húsnæðismálum er samþykktar voru í bæjarstjórn Kópavogs.

Allir flokkar í bæjarstjórn Kópavogs stóðu að gerð tillagna um aðgerðir í húsnæðismálum en ekkert hefur bólað á neinum upplýsingum um framhaldið.

Ástandið á húsnæðismarkaði versnar með hverjum mánuðinum sem líður og er bagalegt að vita til þess að Bæjarstjórn Kópavogs sitji aðgerðarlaus í þessum málaflokki þrátt fyrir góð fyrirheit í sameiginlegum tillögum allra flokka." Kristín Sævarsdóttir og Ólöf Pálína Úlfarsdóttir tóku undir bókunina.

Hlé var gert á fundi kl. 18:02.

Fundur hófst aftur kl. 18:12.

Fulltrúar meirihluta lögðu fram eftirfarandi bókun: "Allir flokkar stóðu að nýrri húsnæðisskýrslu í Kópavogi og eru að vinna að framgangi hennar. Framboð á húsnæðiskostum hefur aukist hlutfallslega mest í Kópavogi í samanburði við nágrannasveitarfélögin og vinnan við húsnæðisstefnu Kópavogs er í fullum gangi og gengur vel. Sverrir Óskarsson, Ragnheiður Davíðsdóttir, Ísól Fanney Ólafsdóttir og Helga Sigrún Harðardóttir."

Fulltrúar minnihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun: "Fróðlegt væri ef nefnd væru nokkur dæmi um fjölbreytileika í húsnæðismálum í Kópavogi framyfir önnur sveitarfélög. Arnþór Sigurðsson, Kristín Sævarsdóttir og Ólöf Pálína Úlfarsdóttir."

Fulltrúar meirihlutans lögðu fram eftirfarandi bókun: "Húsnæðisstefna í málefnum fatlaðra, félagslegar íbúðir, íbúðir fyrir ungt fólk, samstarf við byggingaraðila um að byggja nýtt húsnæði í Glaðheimum og Auðbrekku, ódýrara húsnæði úti á Kársnesi. Sverrir Óskarsson, Ragnheiður Davíðsdóttir, Ísól Fanney Ólafsdóttir og Helga Sigrún Harðardóttir."

10

Öryggismál á tónleikum Justin Bieber

Félagsmálaráð lagði fram fyrirspurn um aðkomu velferðarsviðs að tónleikum söngvarans sem haldnir verða í Kórnum síðar í vikunni.

Upplýst var að starfsmenn velferðarsviðs verða á vakt á báðum tónleikum.