Fjárhagsáætlun 2016
Málsnúmer: 1509919
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2801. fundur
Tillögur að gjaldskrám fyrir sundlaugar Kópavogs, íþróttahús og knatthús, sem bæjarstjórn vísaði til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir tillögu I um gjaldskrá sundlauga Kópavogs með fjórum atkvæðum gegn einu. $line$Bæjarráð samþykkir tillögu um gjaldskrá íþróttahúsa með fimm atkvæðum.$line$Bæjarráð samþykkir tillögu um gjaldskrá knatthúsa með fimm atkvæðum.
02
Bæjarstjórn - 1128. fundur
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram tillögur að gjaldskrám fyrir sundlaugar Kópavogs, íþróttahús og knatthús.
Birkir Jón Jónsson lagði til að tillögum að gjaldskrám yrði vísað til fullnaðarafgreiðslu bæjarráðs. $line$$line$Bæjarstjórn samþykkti tillögu Birkis Jóns Jónssonar með 11 atkvæðum.
03
Bæjarstjórn - 1127. fundur
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, tók til máls og lagði fram tillögu að fjárhagsáætlun fyrir árið 2016, ásamt tillögu að álagningu gjalda. Þá gerði bæjarstjóri grein fyrir breytingartillögum við fjárhagsáætlun 2016 og lagði til að þær yrðu samþykktar, ásamt framlagðri fjárhagsáætlun. Jafnframt lagði bæjarstjóri fram tillögur að gjaldskrám.
Forseti bar undir fundinn eftirfarandi tillögu að álagningu gjalda fyrir árið 2016:$line$I. Bæjarstjórn samþykkir að útsvar fyrir árið 2016 verði óbreytt 14,48%. $line$Samþykkt með 11 atkvæðum.$line$II. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir að fasteignagjöld fyrir árið 2016 verði álögð sem hér segir:$line$a) Fasteignaskattur$line$1. Íbúðarhúsnæði lækki úr 0,265% í 0,26% af fasteignamati. $line$Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.$line$$line$2. Atvinnuhúsnæði og annað húsnæði verði óbreytt 1,62% af fasteignamati. $line$Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.$line$$line$3. Opinbert húsnæði verði óbreytt, 1,320% af fasteignamati (sbr. b-lið 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995).$line$Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.$line$$line$4. Hesthús lækki úr 0,265% í 0,26% af fasteignamati.$line$Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum. $line$$line$5. Sumarhús lækki úr 0,265% í 0,26% af fasteignamati.$line$Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.$line$$line$b) Vatnsskattur og holræsagjald$line$1. Vatnsskattur lækki og verði 0,08% af heildarfasteignamati í stað 0,09%. Aukavatnsgjald skv. mæli verði kr. 37,93 (var 36,30) fyrir hvern m3 vatns.$line$Samþykkt með 11 atkvæðum.$line$$line$2. Fráveitugjald, sbr. reglugerð um fráveitugjald í Kópavogsbæ nr. 729/2001, verði óbreytt og nemi 0,169% af fasteignamati, sbr. lög um skráningu og mat fasteigna nr. 94/1976 með síðari breytingum. Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekki holræsagjald. Ekki skal reikna fráveitugjald af húsi það ár sem bygging þess hefst. Rotþróargjald fyrir íbúðarhúsnæði að Vatnsenda verði kr. 26.171 (var 25.658) og innheimtist með fasteignagjöldum.$line$Samþykkt með 11 atkvæðum. $line$$line$c) Lóðarleiga:$line$1. Fyrir lóðir íbúðarhúsa óbreytt 19,48 kr/m².$line$Samþykkt með 11 atkv,æðum.$line$2. Lóðir Lækjarbotnum, óbreytt 19,48 kr/m².$line$Samþykkt með 11 atkvæðum.$line$3. Fyrir lóðir annarra húsa, óbreytt 190,00 kr/m².$line$Samþykkt með 11 atkvæðum.$line$$line$Gjalddagar fasteignagjalda 2016 verði átta, þann 1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí, 1. júní, 1. júlí, 1. ágúst og 1. september og greiðist áttundi hluti gjaldsins hverju sinni. Eindagi verði í lok hvers mánaðar.$line$Gjaldendur er greiða lægri fasteignagjöld en 40.000 kr. greiði þau í einu lagi á gjalddaga 01.03.2016.$line$Gjaldendur er greiða fasteignagjöld að fullu fyrir 12.02.2016 fá 3% staðgreiðsluafslátt.$line$Samþykkt með 11 atkvæðum.$line$$line$d) Elli- og örorkulífeyrisþegar er njóta lækkunar fasteignaskatts skulu fá staðgreiðsluafslátt samkvæmt sömu reglum og aðrir gjaldendur af þeim hluta er þeim ber að greiða.$line$Veittur verður afsláttur af fasteignaskatti til þeirra elli- og örorkulífeyrisþega, sem búa í eigin íbúð. Miðast afslátturinn við eftirfarandi tekjumörk í framtali ársins 2015. Hætt verði að leiðrétta útreikning vegna álagningar þegar framtöl ársins 2016 liggja fyrir.$line$$line$100% lækkun:$line$Einstaklingar með heildarárstekjur allt að 2.995.000 krónur (var 2.852 þ).$line$Hjón með heildarárstekjur allt að 4.132.000 krónur (var 3.935 þ).$line$$line$75% lækkun:$line$Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu frá 2.995.001 - 3.451.000 krónur (var 3.287 þ). $line$Hjón með heildarárstekjur á bilinu 4.132.001 - 4.655.000 krónur (var 4.433 þ).$line$$line$50% lækkun:$line$Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu 3.451.001 - 3.724.000 krónur (var 3.547 þ). $line$Hjón með heildarárstekjur á bilinu 4.433.001 - 4.812.000 krónur (var 4.640 þ).$line$$line$25% lækkun:$line$Einstaklingar með heildarárstekjur á bilinu 3.724.001 - 3.942.000 krónur (var 3.754 þ). $line$Hjón með heildarárstekjur á bilinu 5.053.001 - 5.362.000 krónur (var 5.107 þ).$line$Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.$line$$line$e) Veittur verður styrkur til greiðslu fasteignaskatts af fasteignum þar sem fram fer starfsemi sem ekki er rekin í ágóðaskyni, svo sem menningar-, íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfsemi og mannúðarstörf, sbr. sérstakar reglur bæjarstjórnar þar um.$line$Samþykkt með 11 atkvæðum.$line$$line$III. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir á grundvelli laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, að leggja sérstakt sorphirðu- og eyðingargjald á hverja íbúð í Kópavogi á árinu 2016. Gjaldið lækkar og verður kr. 22.600 á íbúð (var 24.500). Enn fremur verði heimilt að leggja á aukatunnugjald. Innheimta skal gjaldið með fasteignagjöldum og eru gjalddagar þeir sömu.$line$Samþykkt með 11 atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir fundinn breytingartillögu bæjarstjóra, dags. 19. nóvember 2015.$line$Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 svo breytta með 11 atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir fundinn tillögu að gjaldskrá dagforeldra.$line$Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir fundinn tillögu að gjaldskrá mötuneyta og dægradvala í grunnskólum. $line$Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir fundinn tillögu að gjaldskrá leikskóla. $line$Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir fundinn tillögu að framlögum til einkaleikskóla. $line$Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir fundinn tillögu að gjaldskrá Skólahljómsveitar Kópavogs. $line$Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir fundinn tillögu að gjaldskrá frístundaklúbbsins Hrafninn. $line$Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir fundinn tillögu að gjaldskrá vegna breytinga á deiliskipulagi og vegna grenndarkynninga á byggingar- eða framkvæmdaleyfi hjá Kópavogsbæ.$line$Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir fundinn tillögu að gjaldskrá fyrir leikskólastyrk vegna barna í einkareknum leikskólum 2016.$line$Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir fundinn gjaldskrá sérdeilda grunnskóla Kópavogs.$line$Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.$line$$line$Forseti bar undir fundinn tillögu að gjaldskrá fyrir Bókasafn Kópavogs.$line$Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 atkvæðum.$line$$line$Tillögu að gjaldskrá fyrir sundlaugar Kópavogs var frestað með 11 atkvæðum.$line$$line$Eftirfarandi bókun var lögð fram:$line$?Fjárhagsáætlun Kópavogs er nú gerð í samvinnu allra bæjarfulltrúa. Þessi samvinna undirstrikar sameiginlega ábyrgð allra bæjarfulltrúa á rekstri bæjarins. Ákvörðun um samvinnu við áætlunina var samþykkt í bæjarstjórn. Niðurstaðan sýnir að samstarf sem þetta er farsælt fyrir bæinn og bæjarbúa. Í slíkri samvinnu þurfa allir að gefa eitthvað eftir og lokaniðurstaðan endurspeglar það. Bæjarstjórn þakkar starfsfólki bæjarins fyrir vandaða vinnu við gerð áætlunarinnar.$line$Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Gísli Geirdal, Theódóra Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson, Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir, Kristinn Dagur Gissurarson, Ólafur Þór Gunnarsson?
04
Bæjarráð - 2797. fundur
Frá bæjarstjóra, lagðar fram breytingartillögur við fjárhagsáætlun 2016.
Vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu og seinni umræðu.$line$$line$Fjármála- og hagsýslustjóri sat fundinn undir þessum lið.
05
Bæjarstjórn - 1125. fundur
Frá bæjarstjóra, lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar og stofnana fyrir árið 2016 og tillaga að þriggja ára fjárhagsáætlunar
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að vísa tillögu að fjárhagsáætlun 2016 og fjárhagsáætlun 2017 - 2019 til seinni umræðu.
06
Bæjarráð - 2793. fundur
Frá bæjarstjóra, lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar og stofnana fyrir árið 2016 og tillaga að þriggja ára fjárhagsáætlun 2017-2019.
Bæjarráð vísar tillögu að fjárhagsáætlun 2016 og tillögu að þriggja ára áætlun 2017-2019 til bæjarstjórnar til fyrri umræðu.$line$$line$Fjármála- og hagsýslustjóri sat fundinn undir þessum lið.
07
Bæjarráð - 2790. fundur
Frá bæjarstjóra, fundarboð vegna samráðs bæjarfulltrúa við gerð fjárhagsáætlunar 2016.
Lagt fram.