Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bæjarstjórn - 1126. Fundur haldinn 10. nóvember 2015.

Málsnúmer: 1510023F

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1269. fundur

1510364 - Akralind 3. Breytt deiliskipulag. $line$Skipulagsnefnd hafnaði erindinu og vísaði afgreiðslu málsins til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.$line$$line$15082228 - Álftröð 1. Grenndarkynning. $line$Skipulagsnefnd hafnaði erindinu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.$line$$line$15082229 - Kársnesbraut 93. Grenndarkynning. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.$line$$line$1503263 - Kópavogsbakki 2. Breytt deiliskipulag.$line$Erindið var samþykkt á grundvelli minnisblaðs lögfræðideildar dags. 22. október 2015 og málinu vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 10 atkvæðum gegn atkvæði Ólafs Þórs Gunnarssonar.$line$$line$15062060 - Langabrekka 5. Grenndarkynning.$line$Skipulagsnefnd hafnaði erindinu og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum og hafnar erindinu.$line$$line$15082225 - Víðihvammur 26. Grenndarkynning.$line$Skipulagsnefnd samþykkti framlagða tillögu með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með 11 atkvæðum.

02

Umhverfis- og samgöngunefnd - 71. fundur

1408478 - Umhverfisverkefni - Grænar gönguleiðir.$line$Frá skipulagsstjóra, dags. 21. október, lagt fram minnisblað varðandi auðkenni á grænum gönguleiðum skólabarna dags. 11. september 2014 ásamt fyrirhuguðum kostnaðarliðum. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkti að vísa erindinu til umhverfissviðs til úrvinnslu en vísaði kostnaðarliðum til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarráð vísaði afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.$line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar með 11 atkvæðum enda rúmist verkefnið innan fjárhagsáætlunar.$line$