Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfis- og samgöngunefnd - 71. fundur

í Fannborg 4, fundarherbergi 2. hæð

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Hreiðar Oddsson - aðalmaður
  • Sigurður M Grétarsson - aðalmaður
  • Einar Baldursson - aðalmaður
  • Birgir Hlynur Sigurðsson
  • Karl Eðvaldsson
  • Bjarki Þórir Valberg

Ritari

  • Bjarki Valberg

Dagskrá fundar

01

Bæjarráð - 2794 - Fundur haldinn 29. október 2015.

1408478 - Umhverfisverkefni - Grænar gönguleiðir $line$Frá skipulagsstjóra, dags. 21. október, lagt fram minnisblað varðandi auðkenni á grænum gönguleiðum skólabarna dags. 11. september 2014 ásamt fyrirhuguðum kostnaðarliðum. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkti að vísa erindinu til umhverfissviðs til úrvinnslu en vísar kostnaðarliðum til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu. $line$$line$Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

02

Bæjarstjórn - 1126 - Fundur haldinn 11. nóvember 2015.

1408478 - Umhverfisverkefni - Grænar gönguleiðir.$line$Frá skipulagsstjóra, dags. 21. október, lagt fram minnisblað varðandi auðkenni á grænum gönguleiðum skólabarna dags. 11. september 2014 ásamt fyrirhuguðum kostnaðarliðum. Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkti að vísa erindinu til umhverfissviðs til úrvinnslu en vísaði kostnaðarliðum til bæjarráðs og bæjarstjórnar til afgreiðslu. Bæjarráð vísaði afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.$line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu umhverfis- og skipulagsnefndar með 11 atkvæðum enda rúmist verkefnið innan fjárhagsáætlunar.$line$

03

Ósk um úrbætur í Kórahverfi

Lagt fram erindi Bjarna Antonssonar varðandi ósk um úrbætur í Kórahverfi dags. 3. nóvember 2015.

Umhverfis- og samgöngunefnd felur umhverfissviði að fara yfir innsendar athugasemdir og skila umsögn til nefndarinnar fyrir næsta fund nefndarinnar.

04

Snjómokstur stíga. Tilraunaverkefni vegna sópunar hjólaleiða í stað ruðnings.

Kynning á tilraunaverkefni frá Eflu verkfræðistofu ehf. varðandi sópun hjólaleiða.

Umhverfis- og samgöngunefnd þakkar Sighvati Arnarssyni frá Eflu verkfræðistofu ehf. fyrir kynninguna.$line$Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir fyrir sitt leiti þátttöku í tilraunaverkefni enda rúmast það innan ramma núverandi fjárhagsáætlunar.

05

Tillaga varðandi skipti úr jarðefnaeldsneyti yfir í umhverfisvæna orku. Tillaga frá Einari Baldurssyni

Lögð fram tillaga að söfnun upplýsinga sem lagðar verði fram á næsta fundi nefndarinnar.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir söfnun upplýsinga og gerð skýrslu sem lögð verði fyrir á næsta fundi nefndarinnar.

06

Tillaga varðandi losun gróðurhúsalofttegunda. Tillaga frá Einari Baldurssyni

Lögð fram tillaga að söfnun upplýsinga sem lagðar verði fram á næsta fundi nefndarinnar.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir söfnun upplýsinga og gerð skýrslu sem lögð verði fyrir á næsta fundi nefndarinnar.

07

Kópavogsdalur

Lögð fram bókun skipulagsnefndar frá nr. 1268 fundi, 9. nóvember 2015.$line$Fagnað er hugmyndum umhverfis- og samgöngunefndar hvað varðar Kópavogsdalinn en viljum við stíga varlega til jarðar og velja vandlega það sem í dalinn kemur. Tökum heilshugar undir með umhverfis- og samgöngunefnd um að endurskoða deiliskipulag dalsins.$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir, Sverrir Óskarsson, Guðmundur Geirdal og Helga Elínborg Jónsdóttir.

Lagt fram og kynnt.

08

Samþykkt um hænsna og hanahald í Kópavogi

Lögð fram drög að samþykkt um hænsna og hanahald í Kópavogi.

Lagt fram og kynnt.$line$Umhverfis- og samgöngunefndar samþykkir áframhaldandi vinnu og að senda drög að samþykkt um hænsa og hanahald í umsagnarferli hjá viðeignandi aðilum.

09

Hjólað óháð aldri - Cykling uden alder

Lagður fram kostnaður við innflutning og kaup á rafmagnsreiðhjóli fyrir Hjólað óhað aldri verkefnið.

Lagt fram og kynnt.

10

Loftgæði í Kópavogi, mælingar.

Lögð fram drög að fyrirspurnarbréfi til Umhverfis- og auðlindaráðuneytsins varðandi loftgæði í Kópavogi og reglugerð nr. 514/2010 um styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti sem tóku gildi 1.7.2014 og breytingu á reglugerð 514/2010 um styrk brennisteinsvetnis í andrúmslofti 14.7.2014.

Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir drög að bréfi til Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

11

Háttur áhættumats um hvenær sé mælst til þess af grunnskólum að skólabörn komi ekki á reiðhjóli til skóla í Kópavogi? Fyrirspurn frá Sigurði Grétarssyni.

Óskað eftir samantekt á hvernig áhættumati um hvenær sé mælst til þess af grunnskólum að skólabörn komi ekki á reiðhjóli til skóla er háttað í Kópavogi?