Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Niðurstöður stjórnsýsluúttektar Capacent.

Málsnúmer: 1512052

Ferill máls

01

Félagsmálaráð - 1422. fundur

Lagt fram til kynningar

02

Bæjarstjórn - 1146. fundur

Frá bæjarstjóra, dags. 19. október, lögð fram tillaga að breyttu skipulagi velferðarsviðs sem samþykkt var í félagsmálaráði þann 4. apríl sl. með þeirri breytingu að félagsstarf aldraðra verði áfram á menntasviði. Bæjarráð vísaði afgreiðslu til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu að breyttu skipulagi velferðarsviðs með 11 atkvæðum.

03

Bæjarráð - 2843. fundur

Frá bæjarstjóra, dags. 19. október, lögð fram tillaga að breyttu skipulagi velferðarsviðs sem samþykkt var í félagsmálaráði þann 4. apríl sl. með þeirri breytingu að félagsstarf aldraðra verði áfram á menntasviði.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.

04

Forvarna- og frístundanefnd - 41. fundur

Umræða og umsögn um niðurstöður stjórnsýsluúttektar Capacent. Tillögur um breytingar.

Forvarna- og frístundanefnd leggur áherslu á að við skipulag á rekstri félagsmiðstöðva eldri borgara verði tryggð fagmennska í frítímaþjónustu og frístundastarfi. Eins skuli tryggja jákvæð samskipti og samvinnu starfsmanna félagsmiðstöðva eldri borgara og forsvarsmanna eldri borgara.

Félagsmiðstöðvar eldri borgara í Kópavogi bjóða upp á fjölbreytt og metnaðarfullt frístundastarf. Áhersla er lögð á þátttöku eldri borgara í þeim frístundum sem standa til boða auk þess sem hvatt er til þeirra frumkvæðis við frístundastarf.

Markmiðið er að fyrirbyggja félagslega einangrun eldri borgara og þannig hefur starfið mikið forvarnagildi. Mikilvægt er að starfsmenn félagsmiðstöðvanna hafi menntun og reynslu í frístundafræðum. Samskipti og samvinna milli eldri borgara og stjórnenda og starfsmanna félagsmiðstöðva er lykillinn að gæðum og nýtingu þeirrar þjónustu sem boðið er upp á í félagsmiðstöðvunum.

05

Forvarna- og frístundanefnd - 40. fundur

Á fundinn mættu Aðalsteinn Sigfússon sviðsstjóri Velferðarsviðs Kópavogs, Baldur Þór Baldvinsson formaður félags eldri borgara, Amanda K. Ólafsdóttir forstöðumaður félagsmiðstöðva eldri borgara í Kópavogi. Til umræðu var tillaga velferðarsviðs um breytingar á skipuriti sviðsins.

Gestum býðst að skila skriflegu áliti í kjölfar umræðunnar fyrir næsta fund nefndarinnar. Næsti fundur er boðaður fimmtudaginn 1. september 2016 kl. 16.00.

06

Forvarna- og frístundanefnd - 39. fundur

Kynntar niðurstöður úr stjórnsýsluúttekt Capacent um færslu félagsmiðstöðva eldri borgara frá menntasviði yfir á velferðasvið.

Forvarna- og frístundanefnd frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar. Nefndin telur að ófullnægjandi faglegar upplýsingar liggi fyrir varðandi tillöguna og óskar eftir því að fulltrúi velferðarsviðs, forstöðumaður félagsmiðstöðva eldri borgara og formaður FEBK komi á þann fund. Starfsmanni falið að boða viðkomandi á fundinn.

07

Bæjarráð - 2818. fundur

Bæjarráð frestar afgreiðslu á tillögum sem fram koma í úttekt Capacent.

08

Bæjarráð - 2817. fundur

Frá verkefnastjóra velferðarsviðs, dags. 7. apríl, lagt fram erindi ásamt greinargerð að breyttu skipulagi velferðarsviðs sem lögð var fram á fundi félagsmálaráðs þann 4. apríl. Félagsmálaráð samþykkti breytingarnar fyrir sitt leyti.

Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.$line$$line$Sviðsstjóri velferðarsviðs og deildarstjóri ráðgjafa- og íbúðadeildar sátu fundinn undir þessum lið.

09

Félagsmálaráð - 1408. fundur

Lagðar voru fram útfærslur breytingateymis velferðarsviðs á tillögum Capacent um breytingar á skipulagi sviðsins.$line$$line$Félagsmálaráð telur fyrirhugaðar breytingar jákvæðar og til þess gerðar að bæta þjónustu við íbúa. Ráðið samþykkti því breytingarnar fyrir sitt leyti.

10

Bæjarráð - 2807. fundur

Frá bæjarstjóra, lögð fram úttekt Capacent á stjórnun og skipulagi velferðarsviðs Kópavogsbæjar.

Hlé var gert á fundi kl. 9.15. Fundi var fram haldið kl. 9.18.$line$$line$Bæjarráð frestar afgreiðslu.$line$$line$Ráðgjafar Capacent sátu fundinn undir þessum lið.

11

Félagsmálaráð - 1402. fundur

Lagt fram til upplýsingar og umræðu.