Bæjarstjórn - 1146. fundur
í bæjarstjórnarsal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - aðalfulltrúi
- Margrét Friðriksdóttir - aðalfulltrúi
- Ása Richardsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllÁsa Richardsdóttir - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalfulltrúi
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaðurBoðaði forföllPétur Hrafn Sigurðsson - varafulltrúiSat fundinn í staðinn
- Guðmundur Gísli Geirdal - aðalfulltrúi
- Sverrir Óskarsson - aðalfulltrúi
Starfsmenn
- Páll Magnússon - bæjarritari
Ritari
- Páll Magnússon
Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir með 11 atkvæðum eftirfarandi ályktun:[line]"Í ljósi nýlegrar ákvörðunar kjararáðs um kjör þingmanna o.fl. beinir Bæjarstjórn Kópavogs því til Alþingis að endurskoða lög um kjararáð. Það er eðlileg krafa að þessi ákvörðun verði endurskoðuð með tilliti til aðstæðna á vinnumarkaði."
Dagskrá fundar
Frá bæjarritara, lögð fram breytingartillaga á bæjarmálasamþykkt Kópavogs vegna skipulagsbreytinga að því er varðar nefndir og ráð bæjarins og framsal bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu mála. Bæjarstjórn vísaði breytingartillögu að bæjarmálasamþykkt Kópavogs til seinni umræðu með 11 atkvæðum.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum breytingartillögu á bæjarmálasamþykkt Kópavogs vegna skipulagsbreytinga að því er varðar nefndir og ráð bæjarins og framsal bæjarstjórnar til fullnaðarafgreiðslu mála.
Frá bæjarstjóra, lögð fram tillaga að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar og stofnana fyrir árið 2017 og tillaga að þriggja ára fjárhagsáætlun 2018-2020.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, óskaði fært til bókar að hann hefði við upphaf fundar móttekið kröfu frá grunnskólakennurum gagnvart sveitarfélögum.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að vísa tillögu að fjárhagsáætlun 2017 og þriggja ára fjárhagsáætlun 2018-2020 til seinni umræðu.
Lagðar fram fundargerðir bæjarráðs frá 27. og 31. október, afgreiðslna byggingarfulltrúa frá 7. og 14. október, barnaverndarnefndar frá 20. október, félagsmálaráðs frá 24. október, forsætisnefndar frá 3. nóvember, jafnréttis- og mannréttindaráðs frá 19. október, leikskólanefndar frá 20. október, stjórnar SSH frá 10. október og umhverfis- og samgöngunefndar frá 6. september og 18. október.
Lagt fram.
Hlé var gert á fundi kl. 19.00. Fundi var fram haldið kl. 19.25.
2843. fundur bæjarráðs í 15. liðum.
Lagt fram.
Frá bæjarstjóra, dags. 19. október, lögð fram tillaga að breyttu skipulagi velferðarsviðs sem samþykkt var í félagsmálaráði þann 4. apríl sl. með þeirri breytingu að félagsstarf aldraðra verði áfram á menntasviði. Bæjarráð vísaði afgreiðslu til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu að breyttu skipulagi velferðarsviðs með 11 atkvæðum.
2844. fundur bæjarráðs í 5. liðum.
Lagt fram.
Frá bæjarstjóra, dags. 25. október, lögð fram umsögn um erindi Nature Resort ehf. frá 4. apríl sl. ásamt fylgiskjölum, þar sem sótt er um lóð undir upplifunar- og spa hótel á Kársnesi. Erindinu var vísað til umsagnar bæjarstjóra. Lagt er til að Nature Restort ehf. verði gefinn kostur á byggingarrétti á lóðinni Vesturvör 40-48. Einnig lagt til að forsvarsmenn fyrirtækisins vinni tillögu að er breytingu á skipulagi lóðanna í samvinnu við skipulags- og byggingardeild umhverfissviðs, sem taki mið af niðurstöðu Kársnessamkeppninnar. Bæjarráð samþykkti tillöguna með þremur atkvæðum og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 11 atkvæðum.
Frá bæjarstjóra, dags. 27. október, lögð fram viljayfirlýsing Kópavogsbæjar og Hafrannsóknarstofnunar dags. 27. október, um flutning stofnunarinnar að Vesturvör 29. Bæjarráð samþykkti framlagða viljayfirlýsingu við Hafrannsóknarstofnun með fjórum atkvæðum gegn einu.
Ólafur Þór Gunnarsson ítrekar bókun sína frá fundi bæjarráðs.
Bæjarstjórn samþykkir viljayfirlýsinguna með 9 atkvæðum gegn 2. Þeir sem voru samþykkir tillögunni voru Margrét Friðriksdóttir, Birkir Jón Jónsson, Ármann Kr. Ólafsson, Theódóra S. Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Geirdal og Ólafur Þór Gunnarsson en atkvæði gegn tillögunni greiddu Kristín Sævarsdóttir og Bergljót Kristinsdóttir.
198. fundur afgreiðslna byggingarfulltrúa í 23. liðum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.
199. fundur afgreiðslna byggingarfulltrúa í 5. liðum.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu byggingarfulltrúa með 11 atkvæðum.
60. fundur barnaverndarnefndar í 1. lið.
Lagt fram.
1421. fundur félagsmálaráðs í 2. liðum.
Lagt fram.
82. fundur forsætisnefndar í 2. liðum.
Lagt fram.
51. fundur jafnréttis- og mannréttindaráðs í 1. lið.
Lagt fram.
75. fundur leikskólanefndar í 8. liðum.
Lagt fram.
434. fundur stjórnar SSH í 4. liðum.
Lagt fram.
78. fundur umhverfis- og samgöngunefndar í 10. liðum.
Lagt fram.
79. fundur umhverfis- og samgöngunefndar í 19. liðum.
Lagt fram.