Líkamsræktarstöðvar 2016, útboð á húsnæði í Sundlaug Kópavogs og Sundlaug í Versölum.
Málsnúmer: 1601737
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2821. fundur
Frá bæjarlögmanni og deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 10. maí, lögð fram drög að leigusamningi við RFC ehf. um útleigu á húsnæði undir líkamsræktaraðstöðu í sundlaugum Kópavogs.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlögð drög að leigusamningi við RFC ehf. um útleigu á líkamsræktaraðstöðu í sundlaugum Kópavogs.$line$$line$Bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.
02
Bæjarráð - 2809. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, bæjarlögmanni og deildarstjóra íþróttadeildar, dags. 16. febrúar, lagðar fram niðurstöður útboðs vegna útleigu á líkamsræktaraðstöðu í sundlaugum Kópavogs þar sem lagt er til við bæjarráð að gengið verði til samninga við RFC ehf.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum, en hjásetu Birkis Jóns Jónssonar og Ásu Richardsdóttur, að gengið verði til samninga við RFC ehf. um útleigu á líkamsræktaraðstöðu í sundlaugum Kópavogs.$line$$line$Stefán L. Stefánsson sat fundinn undir þessum dagskrárlið. $line$$line$Fundarhlé var gert kl. 11.05. Fundi fram haldið kl. 11.10.$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson bókar:$line$"Ég sit hjá í þessu máli."
03
Bæjarráð - 2805. fundur
Frá bæjarlögmanni, dags. 19. janúar, lagt fram erindi vegna útleigu á húsnæði undir líkamsræktaraðstöðu við sundlaugar í Kópavogi. Bæjarlögmaður hefur yfirfarið útboðsgögnin, sem eru efnislega óbreytt frá síðasta útboði. Lagt er til að auglýsing um útboð verði birt 23. janúar nk. og að unnt verði að opna tilboð 9. febrúar nk.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum að auglýsing um útboð vegna útleigu á húsnæði undir líkamsræktaraðstöðu í sundlaugum Kópavogs verði birt 23. janúar nk. og að unnt verði að opna tilboð 9. febrúar nk. Samþykkt með atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Hjördísar Ýrar Johnson og Karenar Elísabetar Halldórsdóttur. Pétur Hrafn Sigurðsson og Birkir Jón Jónsson sátu hjá við afgreiðslu málsins.