Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2821. fundur

í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
  • Páll Magnússon - bæjarritari
  • Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
  • Guðmundur Gísli Geirdal - varafulltrúi

Ritari

  • Páll Magnússon

Guðmundur Geirdal sat fundinn í fjarveru Karenar Halldórsdóttur.

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Málefni Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs.

Frá bæjarstjóra, kynning á lífeyrisskuldbindingum Kópavogsbæjar. Gerður Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga og Vigfús Ásgeirsson tryggingastærðfræðingur fóru yfir lífeyrisskuldbindingar bæjarins vegna Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar.

Lagt fram.$line$$line$Fjármálastjóri sat fundinn undir þessum lið.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Fyrirspurn um opinn útboðsvef á netinu.

Frá bæjarritara, dags. 10. maí, lögð fram umsögn vegna fyrirspurnar um opinn útboðsvef á internetinu þar sem hægt væri að fylgjast með öllum útboðum Kópavogsbæjar og framgangi þeirra.

Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Líkamsræktarstöðvar 2016, útboð á húsnæði í Sundlaug Kópavogs og Sundlaug í Versölum.

Frá bæjarlögmanni og deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 10. maí, lögð fram drög að leigusamningi við RFC ehf. um útleigu á húsnæði undir líkamsræktaraðstöðu í sundlaugum Kópavogs.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlögð drög að leigusamningi við RFC ehf. um útleigu á líkamsræktaraðstöðu í sundlaugum Kópavogs.$line$$line$Bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

04

Leigusamningur um líkamsræktaraðstöðu í Sundlaug Kópavogs og Sundlauginni Versölum. Dómsmál.

Frá bæjarlögmanni, lagður fram dómur héraðsdóms Reykjaness í máli nr. E-154/2016, Gym heilsa ehf. gegn Kópavogsbæ.

Lagt fram.$line$$line$Bæjarlögmaður sat fundinn undir þessum lið.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

05

Samkomulag um undirbúning, skipulagsvinnu og uppbyggingu Smárans.

Frá bæjarlögmanni, lögð fram drög að samkomulagi um uppbyggingu Smárans, vestan Reykjanesbrautar.

Bæjarráð frestar afgreiðslu.$line$$line$Bæjarlögmaður og sviðsstjóri umhverfissviðs sátu fundinn undir þessum lið.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

06

Kársnesskóli, færanlegar kennslustofur, útboð.

Frá deildarstjóra eignadeildar, dags. 10. maí, lagðar fram niðurstöður útboðs í færanlegar kennslustofur við Kársnesskóla. Lagt er til við bæjarráð að leitað verði samninga við Eðalbyggingar ehf. um smíði á færanlegum kennslustofum við Kársnesskóla.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að leitað verði samninga við Eðalbyggingar ehf. um smíði á færanlegum kennslustofum við Kársnesskóla.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

07

Sumarstörf hjá Kópavogsbæ 2016, 18 ára og eldri.

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 10. maí, lagt fram minnisblað um stöðu ráðninga í sumarstörf hjá Kópavogsbæ 2016 fyrir 18 ára og eldri.

Lagt fram.$line$$line$Deildarstjóri gatnadeildar umhverfissviðs sat fundinn undir þessum lið.

Ýmis erindi

08

Frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, 670. mál. Umsagnarbeiðni.

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 4. maí, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur (EES-reglur, stjórnvaldssektir), 670. mál (stjórnarfrumvarp).

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til úrvinnslu.

Ýmis erindi

09

Frumvarp til laga um breyt. á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð, 673. mál. Umsagnarbeiðni.

Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 4. maí, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um Vatnajökulsþjóðgarð (stjórnarfrumvarp), 673. mál.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns til úrvinnslu.

Ýmis erindi

10

Framhaldsframkvæmdir yfir gjána í miðbæ Kópavogs.

Frá Ris ehf., dags. 27. apríl, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir að koma að frekari framkvæmdum við gjána yfir Hafnarfjarðarveg, ásamt tillöguuppdrætti að staðsetningu tveggja húsa auk bílastæða á svæðinu.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarstjóra til úvinnslu.

Ýmis erindi

11

Smiðjuvegur 42. Umsagnarbeiðni um rekstur ökutækjaleigu.

Frá Samgöngustofu, dags. 3. maí, lagt fram erindi þar sem óskað er umsagnar um umsókn Vladimir Rjaby f.h. Autoplus ehf. um að reka ökutækjaleigu að Smiðjuvegi 42 í Kópavogi.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til umsagnar.

Fundargerðir nefnda

12

Félagsmálaráð, dags. 2. maí 2016.

1410. fundur félagsmálaráðs í 9. liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

13

Félagslegar leiguíbúður. Tillögur um hækkun tekjuviðmiða í stigakerfi.

Frá deildarstjóra ráðgjafa- og íbúðadeildar, dags. 3. maí, lögð fram tillaga um hækkun á tekjuviðmiðum í stigakerfi félagslegra leiguíbúða. Félagsmálaráð samþykkti hækkun tekjuviðmiða á fundi sínum þann 2. maí sl. og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs.

Bæjarráð samþykkir hækkun tekjuviðmiða með fimm atkvæðum.

Fundargerðir nefnda

14

Forvarna- og frístundanefnd, dags. 3. maí 2016.

36. fundur forvarna- og frístundanefndar í 6. liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

15

Lista- og menningarráð, dags. 4. maí 2016.

59. fundur lista- og menningarráðs í 1. lið.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

16

Skólanefnd, dags. 2. maí 2016.

103. fundur skólanefndar í 7. liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

17

Fundargerðir stjórnar Reykjanesfólkvangs, dags. 27. apríl 2016.

Fundur stjórnar Reykjanesfólkvangs í 4. liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

18

Fundargerðir stjórnar Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, dags. 26. apríl 2016.

352. fundur stjórnar Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins í 3. liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

19

Fundargerðir stjórnar Strætó, dags. 29. apríl 2016.

243. fundur stjórnar Strætó í 5. liðum.

Lagt fram.