Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Boðaþing 11-13, Stækkun hjúkrunarheimilis

Málsnúmer: 1602049

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2949. fundur

Frá bæjarstjóra, lagt fram svar frá heilbrigðisráðuneyti við bréfi bæjarstjóra frá 20. febrúar sl. vegna byggingar hjúkrunarheimilis við Boðaþing.

Lagt fram.

Bókun bæjarráðs:

"Bæjarráð fagnar því að heilbrigðisráðuneytið sé reiðubúið í viðræður um að Kópavogsbær taki yfir byggingu 64 hjúkrunarrýma við Boðaþing. Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga til samninga við ráðuneytið."

02

Bæjarráð - 2934. fundur

Frá velferðarráðuneytinu, dags. 5. nóvember, lagt fram svar við erindi bæjarins um fjölgun dagdvalarrýma í Sunnuhlíð þar sem ráðuneytið heimilar tímabundna fjölgun almennra dagdvalarrýma um 10 rými í Sunnuhlíð sem gildi frá 1. desember 2018 til áramóta 2019/2020.

Lagt fram.

Bæjarráð fagnar nauðsynlegri fjölgun dagrýma sem er gott fyrsta skref enda þörfin mjög brýn í þessum málaflokki.

03

Bæjarráð - 2929. fundur

Frá bæjarstjóra, lögð fram bréf, dags. 3. október, sem bæjarstjóri sendi heilbrigðisráðherra vegna hjúkrunarheimilis í Boðaþingi og fjölgunar dagvistunarrýma.

Lagt fram.

04

Bæjarráð - 2925. fundur

Frá Velferðarráðuneyti, dags. 30. ágúst, lagt fram svar við erindi Kópavogsbæjar frá 25. apríl sl. þar sem óskað var eftir viðræðum um að bærinn taki yfir framkvæmdina um byggingu hjúkrunarheimilis við Boðaþing.

Bæjarráð Kópavogs lýsir yfir vonbrigðum með afstöðu heilbrigðisráðuneytisins og skorar á ráðherra að veita Kópavogsbæ heimild til að taka yfir framkvæmdir við stækkun hjúkrunarheimilisins við Boðaþing. Um er að ræða 64 rými en samkvæmt svari ráðuneytisins má búast við því að framkvæmdir geti tafist til ársins 2020 sem væri fjórum árum á eftir áætlun.



Það ófremdarástand sem ríkir í bið eftir hjúkrunarrýmum á höfuðborgarsvæðinu verður að leysa. Hægt væri að hefja framkvæmdir innan 6 mánaða við byggingu hjúkrunarheimilis við Boðaþing ef Kópavogur fengi heimild ráðuneytisins til að taka verkið yfir.

Vegna mikilla tafa við stækkun Boðaþings er nauðsynlegt að grípa strax til aðgerða. Kópavogsbær er tilbúinn, í samstarfi við hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð, að fjölga dagvistunarrýmum fyrir aldraða um 10 sem mun nýtast allt að 25 manns sem eru á biðlista sem telur 135 manns.

05

Bæjarráð - 2882. fundur

Frá bæjarstjóra, dags. 8. september, lagt fram bréf til velferðarráðuneytisins er varðar byggingu hjúkrunarheimilis í Kópavogi og fjölgun dagþjónusturýma.

Lagt fram.

Bókun:

Seinagangur við stækkun hjúkrunarheimilisins við Boðaþing er óþolandi. Ég óska eftir því að fulltrúi heilbrigðisráðuneytisins komi á fund bæjarráðs í næstu viku.

Birkir Jón Jónsson

Bókun:

Tafir á byggingu hjúkrunarheimilis við Boðaþing í Kópavogi kemur til vegna lögbanns á hönnunarsamkeppni hússins. Sýslumaður féllst á beiðnina og í framhaldi hafi gerðarbeiðandi höfðað mál til staðfestingar lögbanninu.

Theódóra S. Þorsteinsdóttir, Ármann Kr. Ólafsson, Karen E. Halldórsdóttir og Hjördís Ýr Johnson

06

Bæjarráð - 2844. fundur

Frá velferðarráðuneyti, dags. 26. október, lögð fram tilkynning um skipan fulltrúa frá ráðuneytinu í starfshóp um byggingu hjúkrunarheimilis við Boðaþing í Kópavogi.

Lagt fram.

07

Félagsmálaráð - 1419. fundur

Félagsmálaráð fagnar undirritun samstarfssamnings bæjarfélagsins við heilbrigðisráðuneytið um uppbyggingu 64 hjúkrunarrýma í Boðaþingi sem stefnt er að að taka í notkun á seinni hluta árs 2018.

08

Bæjarstjórn - 1134. fundur

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði til að bæjarstjórn staðfesti samkomulag við velferðarráðuneyti um stækkun hjúkrunarheimilis við Boðaþing. Samkomulagið kveður á um skiptingu kostnaðar þannig að Velferðarráðuneytið greiði 85% á móti 15% hlutdeild Kópavogsbæjar.$line$$line$Bæjarstjórn staðfestir samkomulagið með 11 atkvæðum.

09

Bæjarráð - 2812. fundur

Lögð fram drög af samkomulagi um stækkun hjúkrunarheimilis við Boðaþing milli Velferðarráðuneytisins og Kópavogsbæjar. Samkomulagið kveður á um skiptingu kostnaðar þannig að Velferðarráðuneytið greiði 85% á móti 15% hlutdeild Kópavogsbærjar, samkvæmt staðfestingu frá ráðuneytinu.

Lagt fram.

10

Bæjarráð - 2808. fundur

Frá velferðarráðuneyti, dags. 1. febrúar, lagt fram bréf þar sem tilkynnt er að ráðuneytið muni innan tíðar óska eftir fundi með Kópavogsbæ í tilefni af ósk sveitarfélagsins um að taka upp viðræður um stækkun hjúkrunarheimilisins að Boðaþingi.

Lagt fram.