Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2808. fundur

í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
  • Páll Magnússon - bæjarritari
  • Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
  • Sverrir Óskarsson - varafulltrúi

Ritari

  • Páll Magnússon

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Álmakór 4. Umsókn um lóð.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 5. febrúar, lögð fram umsókn um lóðina Álmakór 4 frá Helgu P. Finnsdóttur, kt. 200971-3029 og Hauki Hlíðkvist Ómarssyni, kt. 190971-4069. Lagt til að bæjarráð mæli með við bæjarstjórn að samþykkja úthlutun lóðarinnar til umsækjanda, enda uppfyllir hann reglur til úthlutunar.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Beiðni um umsögn um umsókn Iceland Resources ehf. um leyfi til leitar og rannsókna á málmum á Reykjanesskaga.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 4. febrúar, lögð fram umsögn til Orkustofnunar um umsókn Iceland Resources ehf. um leyfi til leitar og rannsókn á málmum á Reykjanesskaga.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fela sviðsstjóra umhverfissvðis að svara erindi Orkustofnunar á grundvelli framlagðrar umsagnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Samræmd lóðaafmörkun mannvirkja orkufyrirtækja.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 2. febrúar, lögð fram umsögn til Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna vinnu við samræmda afmörkun lóða innan sveitarfélaganna þar sem eru að finna mannvirki á vegum orkufyrirtækjanna.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fela sviðsstjóra umhverfissviðs að svara erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga á grundvelli framlagðrar umsagnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

04

Sorpmál í Kópavogi.

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 8. febrúar, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til að framlengja verksamning um sorphirðu í Kópavogi við Íslenska Gámafélagið ehf. um tvö ár.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að framlengja verksamningi um sorphirðu í Kópavogi við Íslenska Gámafélagið ehf. um tvö ár.

Ýmis erindi

05

Boðaþing 11-13, Framkvæmdasjóður umsókn.

Frá velferðarráðuneyti, dags. 1. febrúar, lagt fram bréf þar sem tilkynnt er að ráðuneytið muni innan tíðar óska eftir fundi með Kópavogsbæ í tilefni af ósk sveitarfélagsins um að taka upp viðræður um stækkun hjúkrunarheimilisins að Boðaþingi.

Lagt fram.

Ýmis erindi

06

Tillaga til þingsályktunar um embætti umboðsmanns aldraðra, 14. mál. Umsagnarbeiðni.

Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 5. febrúar, lagt fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um embætti umboðsmanns aldraðra (þingmannamál), 14. mál.

Lagt fram.

Ýmis erindi

07

Þjónustukönnun sveitarfélaga 2015.

Frá Gallup, lögð fram skýrsla fyrir Kópavog með niðurstöðum úr þjónustukönnun sveitarfélaga 2015.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

08

Barnaverndarnefnd, dags. 28. janúar 2016.

53. fundur barnaverndarnefndar í 3. liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

09

Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, dags. 3. febrúar 2016.

208. fundur heilbrigðisnefndar í 83. liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

10

Íþróttaráð, dags. 4. febrúar 2016.

56. fundur íþróttaráðs í 6. liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

11

Fundargerðir stjórnar Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, dags. 27. janúar 2016.

349. fundur stjórnar Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins í 4. liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12

Fundargerðir stjórnar Strætó, dags. 29. janúar 2016.

236. fundur stjórnar Strætó í 8. liðum.

Lagt fram.

Önnur mál

13

Tillaga um minni plastnotkun. Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni.

Ólafur Þór Gunnarsson lagði fram tillögu um að umhverfissvið skoði hvernig hægt er að stuðla að minni plastnotkun í bænum og auka endurvinnslu plasts.

$line$Ármann Kr. Ólafss lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Bendi á að umhverfis- og samgöngunefnd er að vinna að sambærilegu verkefni og því legg ég til að tillögunni verði vísað til nefndarinnar sem innlegg í þá vinnu.$line$Ármann Kr. Ólafsson"$line$$line$Sverrir Óskarsson lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Það væri snilld að hafa pokalausan Kópavog.$line$Sverrir Óskarsson"$line$$line$Bæjarráð vísar tillögunni til umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu.