Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024. Endurskoðun. Skipulagslýsing: Kópavogsgöng.

Málsnúmer: 1602245

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1277. fundur

Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 4: Niðurfelling Kópavogsgangna, dags. 3. janúar 2016. Lýsing var kynnt í samræmi við tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Kynningu lauk 4.5.2016. Erindi bárust frá Mosfellsbæ, dags. 4.5.2016, sem gerir ekki athugasemdir við framlagða lýsingu verkefnisins. Ábendingar bárust frá Skipulagsstofnun, dags. 10.5.2016; frá Reykjavíkurborg, dags. 6.5.2016; frá Vegagerðinni, dags. 3.5.2016.

Frestað. Vísað til úrvinnslu skipulags- og byggingardeildar.

02

Bæjarstjórn - 1133. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 23. febrúar, lögð fram með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040, sem tók gildi 14. júní 2015, lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 4: Niðurfelling Kópavogsgangna, dags. 3. janúar 2016. Skipulagsnefnd samþykkti breytinguna og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 25.02.2016. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

Ása Richardsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Ég leggst gegn því að opið svæði í Kópavogsdal, sunnan Dalvegar verði breytt í verslunar- og þjónustusvæði í breyttu aðalskipulagi Kópavogs.$line$Opin svæði eiga undir högg að sækja í Kópavogi og vil ég varðveita þetta opna svæði, þó Kópavogsgöng verði ekki lögð. $line$Ása Richardsdóttir"$line$$line$Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Ég tel þetta eina bestu lóðina á höfuðborgarsvæðinu til að þétta byggð.$line$Ármann Kr. Ólafsson"$line$$line$Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar með átta atkvæðum gegn tveimur. Ólafur Þór Gunnarsson greiddi ekki atkvæði. Atkvæði með greiddu Ármann Kr. Ólafsson, Margrét Friðriksdóttir, Karen Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson, Guðmundur Gísli Geirdal, Theódóra Þorsteinsdóttir, Sverrir Óskarsson og Birkir Jón Jónsson, en atkvæði á móti greiddu Pétur Hrafn Sigurðsson og Ása Richardsdóttir.

03

Bæjarráð - 2811. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 23. febrúar, lögð fram með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040, sem tók gildi 14. júní 2015, lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 4: Niðurfelling Kópavogsgangna, dags. 3. janúar 2016. Skipulagsnefnd samþykkti breytinguna og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 25.02.2016.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.

04

Bæjarráð - 2810. fundur

Frá skipulagsstjóra, dags. 23. febrúar, lögð fram með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040, sem tók gildi 14. júní 2015, lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 4: Niðurfelling Kópavogsgangna, dags. 3. janúar 2016. Skipulagsnefnd samþykkti breytinguna og vísaði málinu til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð frestar afgreiðslu.$line$$line$Ása Richardsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Ég leggst gegn því að opið svæði í Kópavogsdal, sunnan Dalvegar, verði breytt í verslunar og þjónustusvæði í breyttu aðalskipulagi Kópavogs.$line$Opin svæði eiga undir högg að sækja í Kópavogi og vil ég varðveita þetta opna svæði, þó Kópavogsgöng verði ekki lögð. $line$Ása Richardsdóttir"$line$$line$Ólafur Þór Gunnarsson tekur undir bókun Ásu Richardsdóttur.

05

Skipulagsnefnd - 1273. fundur

Lögð fram með tilvísan í 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040 sem tók gildi 14. júní 2015 lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 4: Niðurfelling Kópavogsgangna, dags. 3. janúar 2016.

Samþykkt. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.$line$$line$Sverrir Óskarsson, Guðmundur Geirdal, Kristinn Dagur Gissurarson og Andrés Pétursson samþykktu tillöguna.$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir og Ása Richardsdóttir samþykktu ekki tillöguna.$line$Sigríður Kristjánsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.$line$ $line$Bókun frá Ásu Richardsdóttur:$line$Ég leggst gegn því að opið svæði í Kópavogsdal, sunnan Dalvegar verði breytt í verslunar- og þjónustusvæði í breyttu aðalskipulagi Kópavogs.$line$Opin svæði eiga undir högg að sækja í Kópavogi og vil ég varðveita þetta opna svæði, þó Kópavogsgöng verði ekki lögð. $line$$line$Margrét Júlía Rafnsdóttir tók undir bókun Ásu Richardsdóttur.

06

Skipulagsnefnd - 1272. fundur

Lögð fram með tilvísan í 1. mgr.30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040 sem tók gildi 14. júní 2015 lýsing á skipulagsverkefninu: Breyting á aðalskipulagi nr. 4. Niðurfelling Kópavogsganga dags. 3. janúar 2016.

Frestað.