Endurskoðun á reglum um fjárhagsaðstoð 2016
Málsnúmer: 1603634
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1148. fundur
Frá deildarstjóra ráðgjafa- og íbúðadeildar, dags. 16. nóvember, lagðar fram tillögur að breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð, ásamt greinargerð, sem samþykktar voru á fundi félagsmálaráðs þann 6. júní sl. Gert hefur verið ráð fyrir auknum kostnaði vegna endurskoðunar reglnanna í fjárhagsáætlun næsta árs. Einnig lagt fram minnisblað frá fjármálastjóra, dags. í nóvember 2016. Bæjarráð vísaði breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn samþykkir framlagðar breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð með 11 atkvæðum.
02
Bæjarráð - 2848. fundur
Frá deildarstjóra ráðgjafa- og íbúðadeildar, dags. 16. nóvember, lagðar fram tillögur að breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð ásamt greinargerð sem samþykktar voru á fundi félagsmálaráðs þann 6. júní sl. Gert hefur verið ráð fyrir auknum kostnaði vegna endurskoðunar reglnanna í fjárhagsáætlun næsta árs. Einnig lagt fram minnisblað frá fjármálastjóra, dags. í nóvember 2016.
Bæjarráð vísar breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð til afgreiðslu bæjarstjórnar.
03
Bæjarráð - 2826. fundur
Frá deildarstjóra ráðgjafa- og íbúðardeildar, dags. 8. júní, lagðar fram tillögur að breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð ásamt greinargerð sem samþykkt var á fundi félagsmálaráðs þann 6. júní sl.
Frestað
04
Félagsmálaráð - 1412. fundur
Lögð voru fram svör við fyrirspurn sem lögð var fram á fundi ráðsins þann 2. maí sl. sem og tillögur að breytingum á reglum um fjárhagsaðstoð.$line$$line$Starfsmönnum var falið að útfæra breytingar á 30.gr. í samræmi við umræður fundar. Að öðru leyti samþykkti félagsmálaráð framlagðar breytingatillögur fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs.
05
Félagsmálaráð - 1410. fundur
Lögð voru fram drög að nýjum reglum.$line$$line$Óskað var eftir yfirliti yfir þá einstaklinga sem sótt hafa um sérstaka aðstoð til foreldra vegna barna á þeirra framfæri skv. 30. gr., bæði þá sem hafa fengið aðstoð og þá sem hefur verið synjað vegna tekna. Einnig var þess óskað að aflað verði upplýsinga frá barnavernd, menntasviði og íþróttafélögum um fjölda þeirra barnafjölskyldna sem fá aðstoð við greiðslu gjalda og að lagður verði fram útreikningur á kostnaði við breytingu á greininni út frá mismunandi tímalengd og upphæð. Lagt var til að sú vinna verði hluti af greiningu sem unnin verður út frá skýrslu UNICEF, sjá næsta mál.$line$$line$Ólöf Pálína Úlfarsdóttir bókaði vegna 23.gr.: "Umhugsunarvert er hvort ekki þurfi að koma til móts við námsmenn þegar námi lýkur á vori þar til fyrsti útborgunardagur kemur."$line$Gunnsteinn Sigurðsson, Ragnheiður S. Dagsdóttir, Karen E. Halldórsdóttir og Helga S. Harðardóttir lögðu fram eftirfarandi bókun: "Í 23. grein er eingöngu áréttað að lánshæft nám sé ekki jafnframt styrkt af sveitarfélaginu."$line$$line$Afgreiðslu málsins var frestað.$line$Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.$line$$line$Ragnheiður S. Dagsdóttir fór af fundi kl. 17.05.