Tekju- og eignaviðmið í stigakerfi félagslegra leiguíbúða
Málsnúmer: 16041198
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1144. fundur
Frá deildarstjóra ráðgjafa- og íbúðadeildar, dags. 3. maí, lögð fram til staðfestingar bæjarstjórnar hækkun á tekjuviðmiðum í stigakerfi félagslegra leiguíbúða sem bæjarráð samþykkti fyrir sitt leyti á fundi þann 12. maí sl. Bæjarráð vísaði málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bæjarstjórn staðfestir hækkun á tekjuviðmiðum í stigakerfi félagslegra leiguíbúða með 11 atkvæðum.
02
Bæjarráð - 2842. fundur
Frá deildarstjóra ráðgjafa- og íbúðadeildar, dags. 3. maí, lögð fram til staðfestingar bæjarstjórnar hækkun á tekjuviðmiðum í stigakerfi félagslegra leiguíbúða sem bæjarráð samþykkti fyrir sitt leyti á fundi þann 12. maí sl.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
03
Félagsmálaráð - 1419. fundur
Félagsmálaráð óskaði eftir því á 1417. fundi sínum 20. september sl. að sviðsstjóri aflaði upplýsinga hjá velferðarráðuneytinu vegna útgáfu reglugerðar nr. 742/2016 um breytingu á reglugerð um lánveitingar Íbúðalánasjóðs til sveitarfélaga, félaga eða félagasamtaka sem ætlaðar eru til byggingar eða kaupa á leiguhúsnæði nr. 1042/2013, með síðari breytingum.
Lögð var fram greinargerð vegna fundar sem sviðsstjóri velferðarsviðs og deildarstjóri ráðgjafa og íbúðadeildar áttu með fulltrúum velferðarráðuneytis þann 29. september 2016.
Á fundinum kom auk annars fram að sveitarfélög séu ekki skyldug til að hlýta viðmiðum reglugerðar ráðuneytisins.
Félagsmálaráð óskaði eftir skriflegum rökstuðningi ráðuneytis fyrir þeim hækkunum sem orðið hafa á tekju- og eignaviðmiðum og þá sérstaklega hækkun á viðbót vegna barna yngri en 20 ára á heimili leigutaka.
Einnig var óskað eftir áliti bæjarlögmanns á því hvort sveitarfélaginu sé heimilt að ákvarða viðmið sín óháð reglugerð ráðuneytis.
Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.
04
Félagsmálaráð - 1417. fundur
Lögð var fram reglugerð nr. 742/2016 um breytingu á reglugerð um lánveitingar Íbúðalánasjóðs til sveitarfélaga, félaga eða félagasamtaka sem ætlaðar eru til byggingar eða kaupa á leiguhúsnæði nr. 1042/2013, með síðari breytingum.
Lagt fram.
Félagsmálaráð fól sviðsstjóra að afla skýringa velferðarráðuneytis á framlagðri reglugerð.
Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.
05
Bæjarráð - 2821. fundur
Frá deildarstjóra ráðgjafa- og íbúðadeildar, dags. 3. maí, lögð fram tillaga um hækkun á tekjuviðmiðum í stigakerfi félagslegra leiguíbúða. Félagsmálaráð samþykkti hækkun tekjuviðmiða á fundi sínum þann 2. maí sl. og vísaði málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkir hækkun tekjuviðmiða með fimm atkvæðum.
06
Félagsmálaráð - 1410. fundur
Félagsmálaráð samþykkti tillögurnar.$line$Rannveig María Þorsteinsdóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.