Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tilnefning í starfshóp vegna fyrirhugaðs öldungaráðs

Málsnúmer: 1604134

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2846. fundur

Birkir Jón Jónsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Hvenær hyggst bæjarstjóri kalla saman starfshóp um stofnun öldungaráðs? Félag eldri borgara í Kópavogi tilnefndi sína fulltrúa þann 29. apríl sl. en starfshópurinn hefur ekki enn verið kallaður saman.

Birkir Jón Jónsson"

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:

"Þann 16. nóvember sl. var boðað til fundar í starfshópi um öldungarráð þann 29. nóvember. Fulltrúi minnihlutans og þar með Framsóknarflokksins í þeim hópi fékk það fundarboð og svaraði því strax í gær að hann gæti mætt til fundar.

Ármann Kr. Ólafsson"

02

Bæjarráð - 2838. fundur

Frá félagi eldri borgara í Kópavogi, dags. 15. september, lagt fram erindi um skipun öldungaráðs í Kópavogi.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra til afgreiðslu.

03

Bæjarráð - 2816. fundur

Frá Félagi eldri borgara í Kópavogi, dags. 4. apríl, lagðar fram tilnefningar í tilefni af skipun starfshóps vegna fyrirhugaðrar stofnunar öldungaráðs í Kópavogi.

Lagt fram.$line$$line$Tilnefndir eru frá meirihluta Ármann Kr. Ólafsson og Theódóra Þorsteinsdóttir en frá minnihluta Pétur Hrafn Sigurðsson.