Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Skráning fjárhagslegra hagsmuna. Tillaga frá Pétri Hrafni Sigurðssyni og Ásu Richardsdóttur.

Málsnúmer: 1604245

Ferill máls

01

Forsætisnefnd - 134. fundur

Forsætisnefnd samþykkir að óska eftir skriflegum upplýsingum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga um vinnu við gerð reglna um hagsmunaskráningu sveitarstjórnarfulltrúa.

02

Forsætisnefnd - 104. fundur

Framhald umræðu.

03

Forsætisnefnd - 103. fundur

Framhald umræðu.

Lögð fram fyrstu drög að reglum um hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa.

Málið rætt og frestað til næsta fundar forsætisnefndar.

04

Forsætisnefnd - 102. fundur

Frá bæjarritara, dags. 18. júlí, lögð fram umsögn vegna tillögu um reglur um hagsmunaskráningu bæjarfulltrúa. Bæjarráð samþykkti á fundi þann 27. júlí sl. að vísa málinu til forsætisnefndar til umsagnar. Framhald umræðu.

Umræður um ólíkar leiðir að hagsmunaskráningu bæjarfulltrúa.

Forsætisnefnd samþykkir með þremur atkvæðum að fela bæjarritara að leggja fram drög að reglum um hagsmunaskráningu bæjarfulltrúa sem taki mið af reglum Hafnarfjarðarbæjar.

05

Forsætisnefnd - 99. fundur

Frá bæjarritara, dags. 18. júlí, lögð fram umsögn vegna tillögu um reglur um hagsmunaskráningu bæjarfulltrúa. Bæjarráð samþykkti á fundi þann 27. júlí sl. að vísa málinu til forsætisnefndar til umsagnar.

Frestað til næsta fundar.

06

Bæjarráð - 2878. fundur

Frá bæjarritara, dags. 18. júlí, lögð fram umsögn vegna tillögu um reglur um hagsmunaskráningu bæjarfulltrúa.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til forsætisnefndar til umsagnar.

07

Bæjarstjórn - 1135. fundur

Frá forsætisnefnd, lögð fram tillaga sem samþykkt var á fundi þann 7. apríl sl. og var vísað til bæjarstjórnar til afgreiðslu. Tillagan er svohljóðandi: "Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir að skrá fjárhagslega hagsmuni bæjarfulltrúa og birta á vef bæjarins. Bæjarritara og bæjarlögmanni verði falið að gera drög að reglum um skráningu fjárhagslegra hagsmuna bæjarfulltrúa og trúnaðarstarfa þeirra, innan og utan bæjarstjórnar."

Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu um skráningu fjárhagslegra hagsmuna bæjarfulltrúa með 11 atkvæðum og að drögum að reglum verði vísað til forsætisnefndar.

08

Forsætisnefnd - 68. fundur

Pétur Hrafn Sigurðsson lagði fram tillögu sem hann stendur að ásamt Ásu Richardsdóttur. Tillagan er svohjóðandi:$line$"Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir að skrá nú þegar fjárhagslega hagsmuni bæjarfulltrúa og birta á vef bæjarins. Bæjarritara og bæjarlögmanni verði falið að gera drög að reglum um skráningu fjárhagslegra hagsmuna bæjarfulltrúa og trúnaðarstörfum utan bæjarstjórnar.$line$Pétur Hrafn Sigurðsson, Ása Richardsdóttir"

Forsætisnefnd vísar tillögunni til bæjarstjórnar til afgreiðslu.$line$$line$Sverrir Óskarsson leggur til að tekið verði saman minnisblað á stjórnsýslusviði um gildandi lög, reglur og samþykktir er varða hæfi og hagsmuni bæjarfulltrúa við störf sín.$line$$line$Forsætisnefnd samþykkir tillöguna.