Forsætisnefnd - 99. fundur
á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Margrét Friðriksdóttir - aðalmaður
- Sverrir Óskarsson - aðalmaður
- Ása Richardsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
01
Tillaga um að fundargerðir Ungmennaráðs Kópavogs verði lagðar fyrir bæjarráð og að fulltrúar ungmennaráðs verði boðaðir á fund bæjarstjórnar
Forsætisnefnd óskaði eftir því á síðasta fundi að ábyrgðarmaður Ungmennaráðs komi á næsta fund nefndarinnar til að fara yfir málefni Ungmennaráðs.
Umræður um fundarfyrirkomulag ungmennaráðs.
02
Skráning fjárhagslegra hagsmuna. Tillaga frá Pétri Hrafni Sigurðssyni og Ásu Richardsdóttur.
Frá bæjarritara, dags. 18. júlí, lögð fram umsögn vegna tillögu um reglur um hagsmunaskráningu bæjarfulltrúa. Bæjarráð samþykkti á fundi þann 27. júlí sl. að vísa málinu til forsætisnefndar til umsagnar.
Frestað til næsta fundar.
I. Önnur mál - fundargerðir
II. Kosningar
Forsætisnefnd samþykkir samhljóða að hafin verði myndupptaka af fundum bæjarstjórnar frá og með 12. september 2017.
Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni, bæjarfulltrúa um breytingu á bæjarmálasamþykkt Kópavogs. Bæjarráð samþykkir að 1. grein Bæjarmálasamþykktar Kópavogs hljóði þannig: 1. grein Skipan bæjarstjórnar Bæjarstjórn Kópavogs er skipuð 15 fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum sveitarfélagsins samkvæmt lögum um kosningar til bæjarstjórna. Jafnframt að 27. grein orðist svo: 27. gr. Kosning bæjarráðs. Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa sjö aðalmenn og jafnmarga varamenn í bæjarráð til eins árs. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð, sbr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga. Þeir bæjarfulltrúar og varabæjarfulltrúar, sem kosningu hafa hlotið af sama lista og hinn kjörni bæjarráðsmaður eru varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann bæjarráðs úr hópi kjörinna bæjarráðsmanna. Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs. Kosning í bæjarráð skal vera leynileg og bundin hlutfallskosning sé þess óskað. Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráðið. Erindinu var vísað til forsætisnefndar í bæjarráði 24.ágúst.
Frestað til næsta fundar.