Gjaldskrárbreytingar n.k. misseri
Málsnúmer: 1605242
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 61. fundur
Á 59. fundi íþróttaráðs fól ráðið íþróttadeild að taka saman, yfirlit yfir kostnað við íþróttaiðkun barna í Kópavogi og gera samanburð á sambærilegri þjónustu í nágrannasveitarfélögum bæjarins. $line$Á 60. fundi ráðsins var lagt fram yfirlit yfir samanburð æfingagjalda í fjórum íþróttagreinum þ.e., dansi, fimleikum, handknattleik og knattspyrnu í þremur aldursflokkum, 7-8 ára, 11-12 ára og 15-16 ára.$line$Íþróttaráð fól starfsmönnum að greina samanburðinn frekar. $line$Lögð fram ítarlegri greining þar sem tekið er tillit til allra grunnbreyta í samanburðinum.
Gjaldskrármál íþróttafélagana hafa á síðustu mánuðum verið til ítarlegrar skoðunar og umfjöllunar í ráðinu. Á grundvelli þeirrar vinnu telur íþróttaráð að heilt yfir sé ekki ástæða til að búast við verðskrárbreytingum hjá íþróttafélögum í Kópavogi á næsta hausti.
02
Íþróttaráð - 60. fundur
Á 59. fundi íþróttaráðs óskaði ráðið eftir því að íþróttadeild tæki saman, yfirlit yfir kostnað við íþróttaiðkun barna í Kópavogi og gerði samanburð á sambærilegri þjónustu í nágrannasveitarfélögum bæjarins. $line$Lagt fram yfirlit yfir samanburð æfingagjalda í fjórum íþróttagreinum þ.e., dansi, fimleikum, handknattleik og knattspyrnu í þremur aldursflokkum, 7-8 ára, 11-12 ára og 15-16 ára.
Lagt fram. Umræður. Íþróttaráð felur starfsmönnum að greina samanburðinn frekar.
03
Íþróttaráð - 59. fundur
Íþróttaráð hefur samþykkt vinnureglur íþróttadeildar um eftirlit með gjaldskrárbreytingum á þjónustuveitenda sem aðild eiga að íþrótta- og tómstundakerfi Kópavogsbæjar. Þar kemur fram að Íþróttadeild muni birta í júlí ár hvert vikmörk um gjaldskrárbreytingar sem samræmast almennum viðmiðum Íþróttaráðs hvað gjaldskrárbreytingar varðar.
Íþróttaráð óskar eftir því að íþróttadeild taka saman, fyrir næsta fund ráðsins, yfirlit yfir kostnað við íþróttaiðkun innan Kópavogsbæjar og einnig samanburð við kostnað við sambærilega þjónustu í öðrum sveitarfélögum.