Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Íþróttaráð - 61. fundur

í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Gunnar Guðmundsson - starfsmaður nefndar
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - sviðsstjóri fræðslusviðs
  • Jón Finnbogason - aðalfulltrúi
  • Hlín Bjarnadóttir - aðalfulltrúi
  • Magnús Jakobsson - varafulltrúi
  • Rannveig Bjarnadóttir - aðalfulltrúi

Ritari

  • Gunnar Guðmundsson

Dagskrá fundar

Almenn mál

01

Gervigras-4 kynslóð án innfillingar.

Lagður fram tölvupóstur dags. 8. júní sl. þar sem kynnt er í stuttu máli næsta kynslóð gervigrass og þá án þekktra innfyllingarefna eins og sl. ár.

Lagt fram

Almenn mál

02

Pæjumót TM 2017, sótt um aðstöðu í Kórnum.

Lagt fram erindi frá Aðalstjórn HK dags. 9. júní sl. þar sem óskað eftir aðstöðu í Kórnum fyrir 2ja daga knattspyrnumót fyrir stúlkur í lok janúar 2017.

Íþróttaráð samþykkir erindið.

Almenn mál

03

Gjaldskrárbreytingar n.k. misseri

Á 59. fundi íþróttaráðs fól ráðið íþróttadeild að taka saman, yfirlit yfir kostnað við íþróttaiðkun barna í Kópavogi og gera samanburð á sambærilegri þjónustu í nágrannasveitarfélögum bæjarins. $line$Á 60. fundi ráðsins var lagt fram yfirlit yfir samanburð æfingagjalda í fjórum íþróttagreinum þ.e., dansi, fimleikum, handknattleik og knattspyrnu í þremur aldursflokkum, 7-8 ára, 11-12 ára og 15-16 ára.$line$Íþróttaráð fól starfsmönnum að greina samanburðinn frekar. $line$Lögð fram ítarlegri greining þar sem tekið er tillit til allra grunnbreyta í samanburðinum.

Gjaldskrármál íþróttafélagana hafa á síðustu mánuðum verið til ítarlegrar skoðunar og umfjöllunar í ráðinu. Á grundvelli þeirrar vinnu telur íþróttaráð að heilt yfir sé ekki ástæða til að búast við verðskrárbreytingum hjá íþróttafélögum í Kópavogi á næsta hausti.

Almenn mál

04

Breiðablik-frjálsíþróttadeild óskar eftir styrk v.ferðar á MÍ 2016.

Lögð fram beiðni frjálsíþróttadeildar um styrk vegna þáttöku á MÍ 2016.

Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

05

Æfingatöflur fyrir veturinn 2016-2017

Lögð fram samantekt á þeim umsóknum sem borist hafa ráðinu frá íþróttafélögum fyrir næsta vetur. Í samantektinni koma fram óskir deilda sem inn voru sendar og tillögur íþróttadeildar að afgreiðslu þeirra.

Jafnframt lagðar fram æfingatöflur íþróttamannvirkja Kópavogsbæjar sem byggja á töflum frá síðastliðnu ári og þeim tillögum sem liggja fyrir.

Málinu var frestað á síðasta fundi og íþróttafulltrúa falið að eiga samskipti við íþóttafélögin svo sem varðandi framsetningu á umsóknum og gefa þeim færi á að gera skriflegar athugasemdir við þær tillögur fyrir þennan fund.

Lagt fram.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

06

Glóð-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannv. Kópavogs 2016-2017.

Lögð fram umsókn félagsins eftir aðstöðu í íþróttahúsi Kópavogsskóla á þriðjudögum 16-19 og fimmtudögum 16-20. Í Digranesi ( vestursal ) mánudaga 17-18 og þriðjudaga 16-17, alls 2 klukkustundir. Einnig óskar félagið eftir aðstöðu í Gullsmára á miðvikudögum og í Smáranum á mánudögum í klukkutíma frá 13:30-14:30.

Íþróttaráð getur orðið við óskum félagsins í þeim mannvirkjum sem eru í rekstri bæjarins.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

07

Æfingatímar 2016-Vatnaliljur

Lögð fram beiðni félagsins um að halda sömu tímum og félagið hefur nýtt á tímabilinu (15/16)

Íþróttaráð getur orðið við óskum félagsins.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

08

HK-TKD deild-æfingarými í Fagralundi

Lögð fram beiðni TKD deildar HK um 3 tíma í Snælandsskóla og alls 12 tíma í skrifstofurými í Fagralundi.

Íþróttaráð getur ekki orðið við óskum deildarinnar um tíma í skrifstofurými, en tímar í Snælandsskóla samþykktir með fyrirvara um áframhaldandi starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirlitinu.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

09

Stál-Úlfur, æfingatímar 2016-2017

Lögð fram beiðni knattspyrnudeildar um 4,5 tíma á gervigrasi í Fagralundi (1,5 tíma mánudag , fimmtudag og sunnudag). Auk þessa sækir félagið um tíma fyrir futsal 3 x 1,5 tíma í Digranesi og 3 tíma fyrir 40 í Digranesi.

Einnig lögð fram beiðni körfuknattleiksdeildar um alls 4,5 tíma fyrir æfingar í Kársnesskóla auk keppnistíma.

Íþróttaráð getur orðið við óskum knattspyrnudeildar Stálúlfs um afgangstíma (eftir kl. 21) í Fagralundi að vetri og tíma á gervigrasi yfir sumartíma eins og verið hefur. Skoða þarf möguleika á afgangs tíma fyrir futsal í Digranesi. Ekki er hægt að verða við ósk knattspyrnudeildarinnar um tíma fyrir 40 plús.

Íþróttaráð samþykkir að veita körfuknattleiksdeild félagsins 3,5 tíma til ráðstöfunar í Íþróttahúsi Kárnses. Athugað verður með keppnistíma fyrir deildina í Fagralundi.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

10

Skotfélag Kópavogs-Umsókn um afnot af æfingartímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2016/2017.

Lögð fram tímatafla Skotfélags Kópavogs fyrir kjallaranum í Digranesi.

Íþróttaráð felur félaginu að ráðstafa tímum sínum í kjallaranum í Digranesi.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

11

Ísbjörninn-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannv. Kópavogs 2016-2017.

Lögð fram beiðni félagsins um að halda sömu tímum og félagið hefur nýtt á síðasta vetri (15/16).

Íþróttaráð getur orðið við óskum félagsins um afgangstíma (eftir kl. 21) í Fagralundi að vetri og tíma á gervigrasi yfir sumartíma eins og verið hefur.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

12

Augnablik-Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannv. Kópavogs 2016-2017.

Lögð fram beiðni körfuknattleiksdeildar félagsins þar sem óskað er eftir 6 tímum á viku undir starfsemi barna og unglingastarfs. Sótt er um aðstöðu í Þinga-, Kóra- eða Hvarfahverfi.

Íþróttaráð getur ekki orðið við ósk félagsins.

Eina íþróttahúsið sem er í ofangreindum hverfum er íþróttahúsið Kórinn sem er í rekstri HK. Íþróttaráð hvetur því körfuknattleiksdeild Augnabliks að leita samstarfs við HK varðandi æfingar í hverfinu.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

13

Dansfélagið Hvönn-Stundadagskrá 2016-2017.

Lögð fram tímatafla félagsins fyrir Danssalnum í Kórnum.

Íþróttaráð felur dansfélaginu Hvönn að ráðstafa sínum tímum í danssalnum í Kórnum.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

14

Breiðablik-æfinga-og sundaðstaða 2016-2017

Lögð fram beiðni sunddeildar um tíma í Sundlaug Kópavogs (innilaug, útilaug og barnalaug inni) og í Salalaug (útilaug og innilaug).

Íþróttaráð getur ekki orðið við beiðni um fjölgun tíma/brauta. Vísað til forstöðumanna sundlauganna til frekari úrvinnslu.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

15

Breiðablik,körfuknattleiksd. -umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogs.

Lögð fram beiðni körfuknattleiksdeildar eftir 9,5 tímum í íþróttahúsi Kársnes, 10 tímum í Lindaskóla og 8 tímum í Fagralundi á næsta vetri.

Íþróttaráð getur orðið við óskum körfuknattleiksdeildarinnar varðandi tíma í Kársnesi og Lindaskóla. Íþróttaráð vekur athygli á því að Íþróttaráð hefur úthutað 4 tímum í Fagralundi til aðalstjórnar Breiðabliks.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

16

Breiðablik,frjálsar-umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogs.

Lögð fram beiðni frjálsíþróttadeildar eftir 7,5 tímum í Fagralundi og 7,5 tímum í Kórnum, eða alla virka daga frá kl. 16:15-17:45 (1/2 salur gæti verið nóg). Auk þess er deildin með tíma í Smáranum

Íþróttaráð vekur athygli á því að Íþróttaráð hefur úthutað 4 tímum í Fagralundi til aðalstjórnar Breiðabliks. Þá er auk þess lausir tímar í Fagralundi á sunnudögum.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

17

Breiðablik,skíðadeild-umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogs.

Lögð fram beiðni skíðadeildar um 2 klukkustund í stóra salnum í Digranesi milli kl. 17-19 á virkum degi. Til vara sækir deildin um 4 klukkutíma í Kársnesskóla (þriðjudaga+fimmtudaga 17-19)

Íþróttaráð getur ekki orðið við óskum deildarinnar um tíma í Digranesi. Deildinni boðið að fá tíma í Kársnesi eða Vestursal Digranes.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

18

Gerpla-umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar

Lögð fram beiðni félagsins eftir aðagangi að Lindaskóla 4 daga í viku 4-5 tíma í senn.

Íþróttaráð getur ekki orðið við óskum félagsins, en Gerpla fær úthlutað 2 dögum í Lindaskóla 5 tíma í senn - alls 10 tímum líkt og á liðnu tímabili.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

19

Breiðablik,Taekwondo- umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogs.

Lögð fram beiðni Taekwondo um óbreytta tíma í Lindaskóla á næsta vetri og í Fagralundi mánudaga og miðvikudaga 18-19 og laugardaga 11-12.

Íþróttaráð getur orðið við óskum TKD deildar um tíma í Lindaskóla. Íþróttaráð vekur athygli á því að Íþróttaráð hefur úthutað 4 tímum í Fagralundi til aðalstjórnar Breiðabliks. Þá er auk þess lausir tímar í Fagralundi á sunnudögum.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

20

HK-handbolti,umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogs 2016-2017.

Lögð fram beiðni handknattleiksdeildar eftir 56 klukkustundum í stóra salnum í Digranesi, 6 tímum í íþróttahúsi Kársnes og 5 tímum í Fagralundi.

Íþróttaráð getur orðið við óskum deildarinnar um tíma í Kársnesi. Deildin fær úthlutað 4 tímum í Fagralundi fyrir yngstu flokka deildarinnar. Ekki er hægt að verða við óskum deildarinnar um tímafjölda í Digranesi en félagið hefur til ráðstöfunar tíma í Digranesi á virkum dögum eftir að skóla lýkur á daginn og til kl. 21:00 á kvöldin. Deildin fær einnig úthlutað tímum um helgar undir æfingar og leiki.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

21

HK-Bandýdeild,umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogs 2016-2017.

Lögð fram beiðni bandýdeildar eftir 16 klukkustundum í stóra salnum í Digranesi, 2 tímum í Snælandsskóla og 2 tímum í Kársnesskóla.

Ekki er hægt að verða við óskum deildarinnar um tímafjölda í Digranesi en félagið hefur til ráðstöfunar tíma í Digranesi á virkum dögum eftir að skóla lýkur á daginn og til kl. 21:00 á kvöldin. Deildin fær einnig úthlutað tímum um helgar undir æfingar og leiki.

Tímar í Snælandsskóla samþykktir með fyrirvara um að starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirlitinu.

Ekki er hægt að verða við ósk deildarinnar um tíma í íþróttahúsi Kársnes.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

22

HK-blakdeild,umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogs 2016-2017.

Lögð fram ósk blakdeildar eftir 4 tímum í Íþróttahúsi Kópavogsskóla og 64 tímum í Fagralundi.

Íþróttaráð samþykkir fjóra tíma í Kópavogsskóla, en 64 tímum í Fagralundi er synjað.

Deildin fær úthlutað 31 tímum í Fagralundi til æfinga og keppni.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

23

HK-borðtennis,umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogs 2016-2017.

Lögð fram beiðni borðtennisfélagsins um samtals 14 tíma í íþróttahúsi Snælandsskóla.

Íþróttaráð getur orðið við ósk borðtennisdeildar um tíma í Snælandsskóla með fyrirvara um áframhaldandi starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirlitinu.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

24

HK-íþróttaskóli, umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogs 2016-2017.

Lögð fram beiðni íþróttaskólans um að fá 4 tíma fyrir 2-5 ára í Fagralundi.

Íþróttaráð getur orðið við ósk deildarinnar um tíma fyrir íþróttaskóla í Fagralundi á sunnudögum.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

25

HK-dans, umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogs 2016-2017.

Lögð fram beiðni dansdeildar um að fá 35 tíma í Fagralundi eða alla virka daga frá kl. 14-21. Einnig óskar deildin eftir 5 tímum á laugardögum í vestursal Digranes.

Íþróttaráð getur orðið við ósk deildarinnar.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

26

HK-knattleikdsdeild,umsókn um afnot af æfingatímum í knatthúsi Kórsins og á gervigrasi 2016-2017.

Lögð fram beiðni um að bæta núverandi tíma í Kórnum á virkum dögum 2-3 tíma frá 20-21 og um helgar 4 tímum til viðbótar í samfellu við núverandi tíma. Deildin óskar einnig eftir sömu tímum á gervigrasinu úti eins og félagið hefur haft.

Íþróttaráð getur orðið við ósk knattspyrnudeildar um úthlutun sama tímafjölda í Kórnum og félagið hafði síðasta vetur auk tíma sem bætt var við eftir áramót á sunnudögum 9:00-10:30, alls 3 einingar. Deildin missir tíma sína í Fagralundi, alls 6 einingar en verður áfram með sömu tíma og á liðnu tímabili á gervigrasi úti við Kórinn. Ekki er hægt að verða við ósk deildarinnar um aukin tímafjölda um helgar og á virkum dögum í Kórnum.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

27

Breiðablik-knattspyrnudeild. Umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2016-2017.

Lögð fyrir eftirfarandi umsókn knattspyrnudeildarinnar; Fífan 14-22 virka dag og 8 ? 21 um helgar. Upphitað gervigras úti 15-21 virka daga og 9 ? 18 um helgar. 1 x í viku tíma frá 17-18 í íþróttahúsi Smára, Kársnes, Linda og Fagralundi.

Íþróttaráð úthlutar knattspyrnudeild Breiðabliks sama tímafjölda í Fífunni og síðasta vetur, auk tíma sem bætt var við eftir áramót á miðvikudögum og föstudögum frá 21-22, alls 4 einingum.

Deildin fær einnig 6 einingar á gervigrasinu í Fagralundi á þriðjudögum og fimmtudögum frá 18-21, sem er til viðbótar við það sem deildinn hafði fyrir á vellinum síðasta vetur.

Athugað verður með ósk deildarinnar varðandi tíma í íþróttahúsum, en þar er í einhverjum tilfellum um helgartíma að ræða.

Íþróttaráð vekur athygli á því að Íþróttaráð hefur úthutað 4 tímum í Fagralundi til aðalstjórnar Breiðabliks. Þá er auk þess lausir tímar í Fagralundi á sunnudögum.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

28

Hk- umsókn um æfingatíma 2016-2017. athugasemdir.

Lagðar fram athugasemdir varðandi æfingatíma 2016-2017.

HK hefur verið úthlutað alls 35 tímum (blak 31 og handbolti 4) í Íþróttahúsinu Fagralundi. Félaginu stendur einnig til boða að bæta við tímum á sunnudögum í húsinu sé þess óskað. Íþróttaráð sér því ekki ástæðu til að samþykkja athugasemdir félagsins varðandi úthlutun tíma í Fagralundi.

Íþróttaráð samþykkir að ósk félagsins um keppnistíma fyrir Blakdeild á föstudögum 20:00 - 22:00.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

29

Breiðablik-umsókn um æfingatíma/breytingar

Lagðar fram athugasemdir varðandi æfingatíma 2016-2017

Íþróttaráð gerir ekki athugasemd við að Aðalstjórn Breiðabliks taki að sér að ráðstafa þeim tímum sem úthlutað hefur verið til deilda félagsins.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

30

HK,Taekwondodeild.Umsókn um æfingatíma í Kórnum.

Lögð fram beiðni Hk-TKD um að fá hluta af GKG rýminu undir stúkunni í Kórnum fyrir starfsemi Taekwondodeildar félagsins

Íþróttaráð getur ekki orðið við erindi HK enda GKG með samning um afnot af umræddu rými.

Umsóknir um aðstöðu til æfinga og keppni

31

DÍK-umsókn um afnot af æfingatímum í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar 2016-2017.

Lögð fram beiðni DÍK um 5 tíma í íþróttahúsi Kópavogsskóla á næsta vetri.

Íþróttaráð getur orðið við óskum DÍK um tíma í Kópavogsskóla.