Æfingatöflur fyrir veturinn 2016-2017
Málsnúmer: 1605315
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 61. fundur
Lögð fram samantekt á þeim umsóknum sem borist hafa ráðinu frá íþróttafélögum fyrir næsta vetur. Í samantektinni koma fram óskir deilda sem inn voru sendar og tillögur íþróttadeildar að afgreiðslu þeirra.
Jafnframt lagðar fram æfingatöflur íþróttamannvirkja Kópavogsbæjar sem byggja á töflum frá síðastliðnu ári og þeim tillögum sem liggja fyrir.
Málinu var frestað á síðasta fundi og íþróttafulltrúa falið að eiga samskipti við íþóttafélögin svo sem varðandi framsetningu á umsóknum og gefa þeim færi á að gera skriflegar athugasemdir við þær tillögur fyrir þennan fund.
Lagt fram.
02
Íþróttaráð - 60. fundur
Lögð fram samantekt á þeim umsóknum sem borist hafa ráðinu frá íþróttafélögum fyrir næsta vetur. Í samantektinni koma fram óskir deilda sem inn voru sendar og tillögur íþróttadeildar að afgreiðslu þeirra.$line$Jafnframt lagðar fram æfingatöflur íþróttamannvirkja Kópavogsbæjar sem byggja á töflum frá síðastliðnu ári og þeim tillögum sem liggja fyrir.
Íþróttaráð fagnar því hve snemma upplýsingar um æfingatöflur fyrir veturinn 2016 - 2017 liggja fyrir. $line$Íþróttaráð gerir ekki athugasemdir að svo stöddu við framlagðar tillögur sem nánar eru útlistaðar í dagskrárliðum 8 - 29. $line$Íþróttaráð felur íþróttafulltrúa að eiga samskipti við íþróttafélögin svo sem varðandi framsetingu á umsóknum og gefa þeim færi á að gera skriflegar athugasemdir við þær tillögur sem lagðar hafa verið fyrir íþróttaráð.$line$Málið verður tekið fyrir á næsta fundi.$line$Bókun þessi á við um liði 8. til 29. lið á dagskrá fundarins.
03
Íþróttaráð - 59. fundur
Lagðar fram þær umsóknir sem borist hafa ráðinu frá íþróttafélögum fyrir næsta vetur.
Frestað.