HK-vegna strandblaks aðstöðu
Málsnúmer: 1605341
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2826. fundur
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 9. júní 2016, varðandi erindi framkvæmdastjóra HK, dags. 12. maí 2016, vegna viðhalds á strandblaksaðstöðu. Bæjarráð samþykkti á fundi sínum, 19. maí sl. að vísa erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til kostnaðarumsagnar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár.$line$$line$Sverrir Óskarsson bókar:$line$"Undirritaður væri tilbúinn að skoða erindið með hagkvæmari kost að leiðarljósi"$line$$line$Ólöf Pálína Úlfarsdóttir bókar:$line$"Tek undir bókun Sverris"
02
Bæjarráð - 2822. fundur
Frá deildarstjóra íþróttadeildar, dags. 13. maí, lagt fram erindi HK þar sem farið er fram á að bætt verði aðstaða til iðkunar strandblaks í Fagralundi. Íþróttaráð bókaði á fundi sínum þann 12.05.2016 að það teldi rétt að bæjarráð skoðaði málið með hliðsjón af viðhaldsþörf íþróttamannvirkja í Kópavogi í áætlanagerð sinni þar sem ekki liggja fyrir fjármunir í verkefnið að svo stöddu.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til kostnaðarumsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.
03
Íþróttaráð - 59. fundur
Lagt fram Erindi frá HK, dagsett 12. maí 2016 þar sem farið er fram á að bætt verði aðstaða til iðkunnar strandblaks í Fagralundi.
Íþróttaráð telur rétt að Bæjarráð skoði málið með hliðsjón af viðhaldsþörf íþróttamannvirkja í Kópavogi í áætlunargerð sinni þar sem ekki liggja fyrir fjármunir í verkefnið að svo stöddu.