Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Óperudagar í Kópavogi 2016

Málsnúmer: 1606651

Ferill máls

01

Lista- og menningarráð - 61. fundur

Forstöðumaður menningarmála, Arna Schram, kynnir frumskýrslu vegna hátíðarinnar og listrænn stjórnandi hátíðarinnar, Guja Sandholt, fer einnig yfir hvernig til tókst og svarar spurningum.

Lista og menningaráð lýsir yfir mikilli ánægju með aðsókn og upplifun á Óperudögum í Kópavogi. Ráðið færir starfsmönnum Kópavogs þakkir fyrir sitt framlag sem gerði veg þessarar hátíðar sem mestan. Listrænn stjórnandi var Guja Sandholt sem naut stuðnings Jóhönnu K. Jónsdóttur MA nema í menningarstjórnun á Bifröst.Framkvæmd hátíðar samræmist vel samþykktri menningarstefnu Kópavogs. Menningarhúsin á holtinu voru öll nýtt undir fjölbreytta viðburði ásamt því að sungið var undir berum himni, í sundi, í félagsmiðstöðvum aldraðra sem og í húsnæði Leikfélags Kópavogs. $line$