Lista- og menningarráð - 61. fundur
í Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarherbergi
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - aðalfulltrúi
- Björg Baldursdóttir - aðalfulltrúi
- Þuríður Backman - aðalfulltrúi
- Sigurður Sigurbjörnsson - aðalfulltrúi
- Auður Cela Sigrúnardóttir - aðalfulltrúi
- Þórunn Sigurðardóttir - aðalfulltrúi
Ritari
- Arna Schram
Dagskrá fundar
Útnefndur bæjarlistamaður mætir fyrir ráðið.
Ráðið ákveður að formleg útnefning bæjarlistamanns og heiðurslistamanns fari fram 17. júní.
Bæjarráð vísar framkvæmdaáætluninni til umsagnar nefnda og ráða bæjarins.
Lista- og menningarráð fagnar framkvæmdaáætlun Kópavogsbæjar í jafnréttis- og mannréttindamálum. Í framkvæmdaáætlun jafnréttis- og mannréttindaráðs er kafli sem snýr að menningu, þar stendur: "Verkefni: Menningarhús bæjarins kanni hvernig ólíkir hópar (kyn, aldur, o.fl.) nota þjónustu þeirra með það fyrir augum að hægt verði að gera sérstak átak komi í ljós að ákveðnir hópar nýta sér ekki þjónustuna. Könnun gerð á árinu 2017 í samstarfi við jafnréttis- og menningarráð." $line$$line$Lista- og menningarráð vísar til nýlegrar samþykktrar Menningarstefnu sem ráðið og sviðið starfar í samræmi við. Ráðið telur verkefni eins og framkvæmdaáætlun kveður á um ekki tímabært að svo stöddu nema til komi viðbótarfjármagn.$line$
Forstöðumaður menningarmála, Arna Schram, kynnir frumskýrslu vegna hátíðarinnar og listrænn stjórnandi hátíðarinnar, Guja Sandholt, fer einnig yfir hvernig til tókst og svarar spurningum.
Lista og menningaráð lýsir yfir mikilli ánægju með aðsókn og upplifun á Óperudögum í Kópavogi. Ráðið færir starfsmönnum Kópavogs þakkir fyrir sitt framlag sem gerði veg þessarar hátíðar sem mestan. Listrænn stjórnandi var Guja Sandholt sem naut stuðnings Jóhönnu K. Jónsdóttur MA nema í menningarstjórnun á Bifröst.Framkvæmd hátíðar samræmist vel samþykktri menningarstefnu Kópavogs. Menningarhúsin á holtinu voru öll nýtt undir fjölbreytta viðburði ásamt því að sungið var undir berum himni, í sundi, í félagsmiðstöðvum aldraðra sem og í húsnæði Leikfélags Kópavogs. $line$