Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Umsókn um launað námsleyfi veturinn 2017-2018

Málsnúmer: 16082114

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2889. fundur

Frá starfsmannastjóra, dags. 15. ágúst, lögð fram beiðni Sigríðar Gunnarsdóttur um launað námsleyfi og lagt til að henni verði veitt launað námsleyfi í 5 mánuði á árinu 2018 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita Sigríði Gunnarsdóttur launað námsleyfi í 5,0 mánuði á árinu 2018 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma.

02

Bæjarráð - 2849. fundur

Frá starfsmannastjóra, dags. 6. desember, lögð fram beiðni Sigríðar Gunnarsdóttur um námsleyfi og lagt til að henni verði veitt launað námsleyfi í 4 mánuði á árinu 2017 og bindur leyfið því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma. Umsókn hennar um 5 mánaðar námsleyfi á árinu 2018 er vísað frá.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita Sigríði Gunnarsdóttur launað námsleyfi í 4 mánuði á árinu 2017 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu.