Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2889. fundur

á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Pétur Hrafn Sigurðsson - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Ólafur Þór Gunnarsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Ólafur Þór Gunnarsson - vara áheyrnarfulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi

Starfsmenn

  • Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Turnahvarf 4. Beiðni um heimild til veðsetningar lóðar

Frá fjármálastjóra, dags. 31. október, lagt fram erindi f.h. lóðarhafa Turnahvarfs 4, Fag Byggs ehf., um heimild til að veðsetja lóðina.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veitt verði umbeðið veðleyfi.

02

Huldubraut 33, niðurrif.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 31. október, óskað er eftir heimild bæjarráðs til niðurrifs húseignarinnar Huldubraut 33.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum niðurrif á Huldubraut 33.

03

Kópavogsbærinn, Hressingarhælið, Hringshús, ákvörðun um friðun.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 31. október, lögð fram umsögn varðandi Kópavogshælið.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar um næstu skref.

04

Umsókn um launað námsleyfi á vorönn 2018

Frá starfsmannastjóra, dags. 15. ágúst, lögð fram beiðni Ásmundar R. Richardssonar um launað námsleyfi og lagt til að honum verði veitt launað námsleyfi í 3 mánuði á árinu 2018 gegn því skilyrði að hann vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita Ásmundi R. Richardssyni launað námsleyfi í 3,0 mánuði á árinu 2018 gegn því skilyrði að hann vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu.

05

Sótt um launað námsleyfi

Frá starfsmannastjóra, dags. 15. ágúst, lögð fram beiðni Evu Bjargar Bragadóttur um launað námsleyfi og lagt til að henni verði veitt launað námsleyfi í 6 mánuði á árinu 2018 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita Evu Björg Bragadóttur launað námsleyfi í 6,0 mánuði á árinu 2018 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan tíma.

06

Umsókn um launað námsleyfi

Frá starfsmannastjóra, dags. 28. ágúst, lögð fram beiðni Guðlaugar Óskar Gísladóttur um launað námsleyfi og lagt til að henni verði veitt launað námsleyfi í þrjá og hálfan mánuð á árinu 2018 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita Guðlaugu Ósk Gísladóttur launað námsleyfi í 3,5 mánuði á árinu 2018 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan tíma.

07

Umsókn um launað námsleyfi á vorönn 2018

Frá starfsmannastjóra, dags. 15. ágúst, lögð fram beiðni Hrannar Valgeirsdóttur um launað námsleyfi og lagt til að henni verði veitt launað námsleyfi í 3 mánuði á árinu 2018 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita Hrönn Valgeirsdóttur launað námsleyfi í 3 mánuði á árinu 2018 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan tíma.

08

Beiðni um námsleyfi

Frá starfsmannastjóra, dags. 15. ágúst, lögð fram beiðni Irpu Sjafnar Gestsdóttur um launað námsleyfi og lagt til að henni verði veitt launað námsleyfi í 9 mánuði á árinu 2018 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita Irpu Sjöfn Gestsdóttur launað námsleyfi í 9,0 mánuði á árinu 2018 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan tíma.

09

Beiðni um námsleyfi skólaárið 2017-2018

Frá starfsmannastjóra, dags. 21. ágúst, lögð fram beiðni Lilju Rósar Agnarsdóttur um launað námsleyfi og lagt til að henni verði veitt launað námsleyfi í 5 mánuði á árinu 2018 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita Lilju Rós Agnarsdóttur launað námsleyfi í 5,0 mánuði á árinu 2018 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan tíma.

10

Umsókn um launað námsleyfi veturinn 2017-2018

Frá starfsmannastjóra, dags. 15. ágúst, lögð fram beiðni Sigríðar Gunnarsdóttur um launað námsleyfi og lagt til að henni verði veitt launað námsleyfi í 5 mánuði á árinu 2018 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita Sigríði Gunnarsdóttur launað námsleyfi í 5,0 mánuði á árinu 2018 gegn því skilyrði að hún vinni áfram hjá Kópavogsbæ að námi loknu í þrefaldan þann tíma.

11

Formleg beiðni Breiðabliks um gervigras við Fífuna

Frá Breiðablik, lögð fram formleg beiðni Breiðabliks um gervigras við Fífuna.

Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til bæjarstjóra til úrvinnslu.

12

Áskorun til bæjaryfirvalda um frístundastyrki fyrir 67 ára og eldri.

Frá Íþróttafélaginu Glóð, dags. 27. október, lögð fram áskorun til bæjaryfirvalda um frístundastyrki fyrir 67 ára og eldri.

Bæjarráð vísar erindinu til menntasviðs til umsagnar.

13

Rekstraráætlun Sorpu bs. 2018-2022

Frá Sorpu bs., dags. 23. október, lögð fram rekstraráætlun Sorpu bs. 2018-2022.

Lagt fram.

Fundarhlé hófst kl. 8.07, fundi fram haldið kl. 8.22.

Bókun:

Mikilvægt er að sporna við þessu mikla sorpmagni og ekki síst því sorpi sem fer til urðunar. Legg til að sett verði upp flokkunarílát í allar stofnanir bæjarins og fyrirtæki hvött til að gera slíkt hið sama sem liður í því að minnka sorp til urðunar.

Margrét Júlía Rafnsdóttir

14

Sala á Oddfellowbletti

Frá Konráði Adolphssyni, dags. 30. október, lagt fram bréf er varðar sölu á Oddfellowbletti.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarlögmanns.

15

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 229. fundur frá 20.10.2017

Fundargerð í 10 liðum.

Lagt fram.

16

Barnaverndarnefnd - 70. fundur frá 12.10.2017

Fundargerð í 3 liðum.

Lagt fram.

17

Fundargerð 362. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 17.10.2017

Fundargerð í einum lið.

Lagt fram.

18

Fundargerð 380. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 27.10.2017

Fundargerð í 8 liðum.

19

Fundargerð 274. fundar stjórnar Strætó bs. frá 13.10.2017

Fundargerð í 3 liðum.

Lagt fram.