Notendaráð vegna málefna fatlaðs fólks
Málsnúmer: 16091082
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1199. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 19. júní, lögð fram umsögn um breytingar á erindisbréfi notendaráðs um málefni fatlaðs fólks, sem áður hafa verið samþykktar í velferðarráði og forsætisnefnd. Bæjarstjórn frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 11. júní sl.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagt erindisbréf samráðshóps um málefni fatlaðs fólks.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum tillögu um að nefndarmönnum verði greidd þóknun fyrir störf sín.
02
Forsætisnefnd - 140. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 19. júní, lögð fram umsögn um breytingar á erindisbréfi notendaráðs um málefni fatlaðs fólks, sem áður hafa verið samþykktar í velferðarráði og forsætisnefnd. Bæjarstjórn frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum þann 11. júní sl.
Forsætisnefnd samþykkir með þremur atkvæðum að vísa til afgreiðslu bæjarstjórnar erindisbréfi samráðshóps um málefni fatlaðs fólks, óbreytt frá samþykkt velferðarráðs á fundi þess dags. 13. maí sl.
Með vísan til 51. gr. sveitarstjórnarlaga um að sveitarstjórn sé skylt að ákveða kjörnum fulltrúum í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum sveitarfélags hæfilega þóknun fyrir þau störf leggur forsætisnefnd til að greiðslur taki mið af greiðslum til minni fastanefnda.
03
Bæjarstjórn - 1198. fundur
Lögð fram drög að erindisbréfi notendaráðs vegna málefna fatlaðs fólks sem velferðarráð samþykkti fyrir sitt leyti og vísaði til bæjarráðs. Bæjarráð vísaði málinu til forsætisnefndar á fundi sínum þann 13. maí sl.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að fresta afgreiðslu málsins.
04
Forsætisnefnd - 139. fundur
Lögð fram drög að erindisbréfi notendaráðs vegna málefna fatlaðs fólks sem velferðarráð samþykkti fyrir sitt leyti og vísaði til bæjarráðs. Bæjarráð vísaði málinu til forsætisnefndar á fundi sínum þann 13. maí sl.
Forsætisnefnd samþykkir erindisbréfið með áorðnum breytingum.
05
Bæjarráð - 2958. fundur
Lagt fram til afgreiðslu.
Bæjarráð vísar málinu til forsætisnefndar.
06
Velferðarráð - 45. fundur
Lagt fram til afgreiðslu.
Velferðarráð samþykkti framlögð drög að erindisbréfi fyrir sitt leyti og vísaði til bæjarráðs.
07
Velferðarráð - 41. fundur
Lagt fram til afgreiðslu.
Afgreiðslu frestað.
08
Velferðarráð - 36. fundur
Lagt fram til upplýsingar.
Fulltrúar velferðaráðs fagna stofnun notendaráðs skipað fulltrúum fatlaðs fólks með von um jákvæðan árangur af samstarfinu og ítreka mikilvægi þess að meta stöðuna aftur eftir ár.
09
Bæjarstjórn - 1183. fundur
Frá deildarstjóra í þjónustu- og ráðgjafardeild fatlaðra, dags. 19. september, lagðar fram til samþykktar reglur um notendaráð í málefnum fatlaðs fólks, ásamt erindi um stofnun notendaráðs sem verði skipað fulltrúum fatlaðs fólks.
Bæjarstjórn samþykkir framlagðar reglur um notendaráð í málefnum fatlaðs fólks og að stofnað verði notendaráð sem verði skipað fulltrúum fatlaðs fólks með 11 atkvæðum.
10
Bæjarráð - 2930. fundur
Frá deildarstjóra í þjónustu- og ráðgjafardeild fatlaðra, dags. 19. september, lagðar fram til samþykktar reglur um notendaráð í málefnum fatlaðs fólks, ásamt erindi um stofnun notendaráðs sem verði skipað fulltrúum fatlaðs fólks.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar.
11
Félagsmálaráð - 1419. fundur
Félagsmálaráð samþykkti tillögu um stofnun notendaráðs vegna málefna fatlaðs fólks.
Guðlaug Ósk Gísladóttir deildarstjóri sat fundinn undir þessum lið.