Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Digranesvegur 1. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 1611451

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 11. fundur

Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga skipulags- og byggingardeildar að viðbyggingu við Digranesveg 1. Skipulagsráð hafði áður samþykkt að framlögð tillaga yrði kynnt í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði henni til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarstjórn staðfesti afgreiðslu skipulagsráðs með 10 atkvæðum. Athugasemdafresti lauk 2. júní 2017. Athugasemdir og ábendingar bárust. Á fundi skipulagsnefndar 19. júní 2017 var erindið lagt fram að nýju og frestað og skipulags- og byggingardeild falið að taka saman umsögn um innsendar athugasemdir.

Í tillögunni felst að byggt er við húsið til austurs og suðurs 1-3 hæða bygging samtals 1.800 m2. Fyrirkomulag bílastæða breytist. Í tillögunni er gert ráð fyrir samnýtingu bílastæða. Uppdráttur í mkv. 1:1000 og 1:2000 og greinargerð ásamt skýringarmyndum dags. 18. nóvember 2016. Þá lögð fram umsögn skiplags- og byggingardeildar dags. 7. júlí 2017.

Lagt fram og kynnt. Afgreiðslu frestað.

02

Skipulagsráð - 10. fundur

Lögð fram að lokinni kynningu tillaga skipulags- og byggingardeildar að viðbyggingu við Digranesveg 1. Í tillögunni felst að byggt er við húsið til austurs og suðurs 1-3 hæða bygging samtals 1.800 m2. Fyrirkomulag bílastæða breytist. Í tillögunni er gert ráð fyrir samnýtingu bílastæða. Uppdráttur í mkv. 1:1000 og 1:2000 og greinargerð ásamt skýringarmyndum dags. 18. nóvember 2016. Skipulagsráð samþykkti að framlögð tillaga yrði kynnt í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Bæjarstjórn staðfesti afgreiðslu skipulagsráðs með 10 atkvæðum. Athugasemdafresti lauk 2. júní 2017. Athugasemdir og ábendingar bárust. Þá lögð fram umsögn um athugasemdir og ábendingar sem bárust á kynningartímanum, dags. 19. júní 2017.

Afgreiðslu frestað. Vísað til umsagnar skipulags- og byggingardeildar.

03

Bæjarstjórn - 1152. fundur

Lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar að viðbyggingu við Digranesveg 1. Í tillögunni felst að byggt er við húsið til austurs og suðurs 1-3 hæða bygging samtals 1.800 m2. Fyrirkomulag bílastæða breytist. Í tillögunni er gert ráð fyrir samnýtingu bílastæða. Uppdráttur í mkv. 1:1000 og 1:2000 og greinargerð ásamt skýringarmyndum dags. 18. nóvember 2016.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 10 atkvæðum og hjásetu Sverris Óskarssonar.

04

Bæjarráð - 2859. fundur

Lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar að viðbyggingu við Digranesveg 1. Í tillögunni felst að byggt er við húsið til austurs og suðurs 1-3 hæða bygging samtals 1.800 m2. Fyrirkomulag bílastæða breytist. Í tillögunni er gert ráð fyrir samnýtingu bílastæða. Uppdráttur í mkv. 1:1000 og 1:2000 og greinargerð ásamt skýringarmyndum dags. 18. nóvember 2016.

Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar

05

Skipulagsráð - 3. fundur

Lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar að viðbyggingu við Digranesveg 1. Í tillögunni felst að byggt er við húsið til austurs og suðurs 1-3 hæða bygging samtals 1.800 m2. Fyrirkomulag bílastæða breytist. Í tillögunni er gert ráð fyrir samnýtingu bílastæða. Uppdráttur í mkv. 1:1000 og 1:2000 og greinargerð ásamt skýringarmyndum dags. 18. nóvember 2016.

Skipulagsráð samþykkir að framlögð tillaga verði kynni í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bókun frá Ásu Richardsdóttur:

"Mikilvægt er að fá kostnaðaráætlun sem fylgir verkefninu".

06

Skipulagsnefnd - 1286. fundur

Lögð fram tillaga skipulags- og byggingardeildar að viðbyggingu við Digranesveg 1. Í tillögunni felst að byggt er við húsið 1-4 hæða bygging samtalst 1.750 m2. Uppdráttur í mkv. 1:1000 OG 1:2000 og greinargerð ásamt skýringarmyndum dags. 18. nóvember 2016.

Lagt fram og kynnt. Afgreiðslu frestað.