Þverbrekka 2. Breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 1612052
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1152. fundur
Lagt fram erindi Birgis Þórissonar fh. húsfélags Þverbrekku 2 dags. 24. nóvember 2016 þar sem óskað er eftir að fjölga íbúðum úr 30 í 32. Húsfélagið hefur í huga að breyta notkun á rými í sameign þannig að til verði tvær litlar íbúðir (ca 40 fm hvor) sem verði útbúnar á jarðhæð í rýmum sem á teikningu voru ætlaðar fyrir gang, kerru- og hjólageymslu, leikherbergi og skrifstofu húsvarðar.
Á fundi skipulagsnefndar 5. desember 2016 var afgreiðslu erindisins frestað og óskað umsagnar byggingarfulltrúa.
Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa dags. 11. janúar 2017.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsráðs með 11 atkvæðum.
02
Bæjarráð - 2859. fundur
Lagt fram erindi Birgis Þórissonar fh. húsfélags Þverbrekku 2 dags. 24. nóvember 2016 þar sem óskað er eftir að fjölga íbúðum úr 30 í 32. Húsfélagið hefur í huga að breyta notkun á rými í sameign þannig að til verði tvær litlar íbúðir (ca 40 fm hvor) sem verði útbúnar á jarðhæð í rýmum sem á teikningu voru ætlaðar fyrir gang, kerru- og hjólageymslu, leikherbergi og skrifstofu húsvarðar.
Á fundi skipulagsnefndar 5. desember 2016 var afgreiðslu erindisins frestað og óskað umsagnar byggingarfulltrúa.
Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa dags. 11. janúar 2017.
Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar
03
Skipulagsráð - 3. fundur
Lagt fram erindi Birgis Þórissonar fh. húsfélags Þverbrekku 2 dags. 24. nóvember 2016 þar sem óskað er eftir að fjölga íbúðum úr 30 í 32. Húsfélagið hefur í huga að breyta notkun á rými í sameign þannig að til verði tvær litlar íbúðir (ca 40 fm hvor) sem verði útbúnar á jarðhæð í rýmum sem á teikningu voru ætlaðar fyrir gang, kerru- og hjólageymslu, leikherbergi og skrifstofu húsvarðar.
Á fundi skipulagsnefndar 5. desember 2016 var afgreiðslu erindisins frestað og óskað umsagnar byggingarfulltrúa.
Lögð fram umsögn byggingarfulltrúa dags. 11. janúar 2017.
Skipulagsráð samþykkir að unnar verði breytingar á aðalteikningum Þverbrekku 2 þar sem gert er ráð fyrir tveimur íbúðum í sameign hússins sbr. ofangreint erindi húsfélagsins og þær lagðar fyrir byggingarfulltrúa til afgreiðslu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
04
Skipulagsnefnd - 1287. fundur
Lagt fram erindi Birgis Þórissonar fh. húsfélags Þverbrekku 2 dags. 24. nóvember 2016 þar sem óskað er eftir að fjölga íbúðum úr 30 í 32. Húsfélagið hefur í huga að breyta notkun á rými í sameign þannig að til verði tvær litlar íbúðir (ca 40 fm hvor) verði útbúnar á jarðhæð í rýmum sem á teikningu voru ætlaðar fyrir gang, kerru- og hjólageymslu, leikherbergi og skrifstofu húsvarðar.
Afgreiðslu frestað. Vísað til umsagnar byggingarfulltrúa.