Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Nýbýlavegur 1. Krafa um að byggingarleyfisumsókn verði afgreidd án tafar

Málsnúmer: 1703033

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2867. fundur

Frá Cato lögmönnum f.h. lóðarhafa Nýbýlavegar 1, Olíuverzlunar Íslands hf., dags. 7. apríl, lagt fram öðru sinni erindi um kröfu lóðarhafa um tafarlausa afgreiðslu byggingarleyfis sem sótt var um vegna byggingar sjálfsafgreiðslustöðvar á lóð félagsins við Nýbýlaveg 1. Á síðasta fundi bæjarráðs var lagt fram minnisblað lögfræðideildar vegna málsins, dags. 21. mars.

Karen E. Halldórsdóttur vék af fundi undir umræðum og afgreiðslu málsins vegna vanhæfis.



Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu umhverfissviðs.

Karen E. Halldórsdóttir kom aftur til fundar.

02

Bæjarráð - 2863. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 20. mars, lagt fram minnisblað um kröfu lóðarhafa Nýbýlavegar 1 um tafarlausa afgreiðslu byggingarleyfis sem sótt var um vegna framkvæmda á lóðinni.

Lagt fram.

Karen E. Halldórsdóttir víkur af fundi kl. 7:39 við afgreiðslu málsins.

Karen E. Halldórsdóttir kemur aftur inn á fund að lokinni afgreiðslu málsins kl. 7:46.

03

Bæjarráð - 2862. fundur

Frá Cato lögmönnum f.h. Olíuverzlunar Íslands hf., dags. 28. febrúar, lagt fram erindi um byggingu sjálfsafgreiðslubensínstöðvar á lóð félagsins við Nýbýlaveg 1 þar sem óskað er eftir að byggingarleyfisumsókn þess vegna málsins verði afgreidd með formlegum hætti.

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarlögmanns.