Bæjarráð - 2867. fundur
á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Drangey
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
- Birkir Jón Jónsson - áheyrnarfulltrúi
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá fjármálastjóra, lagðir fram ársreikningar Kópavogsbæjar og stofnana bæjarins fyrir árið 2016.
Fundarhlé hófst kl. 7.48. Fundi fram haldið kl. 8.04.
Bæjarráð samþykkir framlagða ársreikninga með fimm atkvæðum og vísar afgreiðslu ársreikninga til bæjarstjórnar til fyrri umræðu.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 12. apríl, lagt fram svar við fyrirspurn af fundi bæjarráðs þann 23. mars sl. um hleðslu rafbíla við nýbyggingar íbúðarhúsnæðis í Kópavogi.
Lagt fram.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 11. apríl, lögð fram umsögn um erindi Skógræktarfélags Kópavogs sem varðar skógrækt á skógræktarsvæði félagsins í Selfjalli og á Vatnsendaheiði, þar sem óskað var eftir að gengið yrði til nýrra samninga. Lagt er til að gengið verði til nýrra samninga um Selfjall í Lækjarbotnum, en að beðið verði með að ganga til samninga um Vatnsendaheiði.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til nýrra samninga við Skógræktarfélag Kópavogs um skógræktarsvæði félagsins í Selfjalli í Lækjarbotnum og að beðið verði með að ganga til nýrra samninga um Vatnsendaheiði.
Frá verkefnastjóra umhverfissviðs, dags. 11. apríl, lagt fram minnisblað um sumarráðningar í sumarstörf fyrir 18 ára og eldri hjá Kópavogsbæ 2017.
Lagt fram.
Frá verkefnastjóra spjaldtölvuverkefnis, dags. 11. apríl, lagðar fram niðurstöður útboðs um spjaldtölvukaup vegna úthlutunar til nemenda sem hefja nám í fimmta bekk haustið 2017. Óskað er eftir heimild bæjarráðs til að ganga til samninga við lægstbjóðanda Skakkaturn um kaup á 530 spjaldtölvum.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita heimild til að ganga til samninga við Skakkaturn um kaup á 530 spjaldtölvum fyrir fimmta bekk.
06
Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024. Breyting. Verklýsing. Borgarlína og auknar byggingarheimildir innan áhrifasvæða.
Frá Skipulagsstofnun, dags. 31. mars, lögð fram umsögn til SSH um lýsingu vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalskipulagi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu vegna Borgarlínu.
Lagt fram.
07
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2040. Breyting. Verklýsing. Hágæðakerfi almenningasamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Borgarlína.
Frá Skipulagsstofnun, dags. 31. mars, lögð fram umsögn til SSH um lýsingu vegna fyrirhugaðrar breytingar á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins, Höfuðborgarsvæðið 2040.
Lagt fram.
Frá Cato lögmönnum f.h. lóðarhafa Nýbýlavegar 1, Olíuverzlunar Íslands hf., dags. 7. apríl, lagt fram öðru sinni erindi um kröfu lóðarhafa um tafarlausa afgreiðslu byggingarleyfis sem sótt var um vegna byggingar sjálfsafgreiðslustöðvar á lóð félagsins við Nýbýlaveg 1. Á síðasta fundi bæjarráðs var lagt fram minnisblað lögfræðideildar vegna málsins, dags. 21. mars.
Karen E. Halldórsdóttur vék af fundi undir umræðum og afgreiðslu málsins vegna vanhæfis.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu umhverfissviðs.
Karen E. Halldórsdóttir kom aftur til fundar.
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 10. apríl, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (íbúakosningar), 184. mál (þingmannafrumvarp).
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.
10
Til umsagnar: Tillaga til þingsályktunar um opnun neyðarbrautarinnar á Reykjavíkurflugvelli, 156. mál
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 10. apríl, lagt fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um opnun neyðarbrautarinnar á Reykjavíkurflugvelli, 156. mál (þingmannamál).
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.
11
Til umsagnar: Tillaga til þingsályktunar um skipun starfshóps til að endurbæta löggjöf um vernd, velferð og veiðar villtra fugla og spendýra, 87. mál
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 10. apríl, lagt fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um skipun starfshóps til að endurbæta löggjöf um vernd, velferð og veiðar villtra fugla og spendýra, 87. mál (þingmannamál).
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.
12
Til umsagnar: Tillaga til þingsályktunar um skiptingu útsvarstekna milli sveitarfélaga, 270. mál
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 10. apríl, lögð fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um skiptingu útsvarstekna milli sveitarfélaga, 270. mál (þingmannamál).
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.
13
Til umsagnar: Tillaga til þingsályktunar um millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll, 222. mál
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 10. apríl, lögð fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um millilandaflug um Hornafjarðarflugvöll, 222. mál (þingmannamál).
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.
14
Til umsagnar: Tillaga til þingsályktunar um stefnumörkun og aðgerðaáætlun um kolefnishlutlaust Ísland, 114. mál
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 10. apríl, lögð fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um stefnumörkun og aðgerðaráætlun um kolefnishlutlaust Ísland, 114. mál (þingmannamál).
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.
15
Til umsagnar: Frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur (EES-reglur o.fl.), 333. mál
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 11. apríl, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um meðhöndlun úrgangs og ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur (EES-reglur o.fl.), 333. mál (stjórnarfrumvarp).
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til afgreiðslu.
Fundargerð í 4. liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 1. lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 1. lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 1. lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 1. lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 3. liðum.
Lagt fram.
21.3 - 1704136 - Malbik 2017
Frá Stefáni L Stefánssyni, dags. 4. apríl, lagt fram erindi þar sem óskað eftir heimild Innkauparáðs til að fara í lokað útboð á malbiki. Síðastliðin ár hefur malbikun verið boðin út í lokuðum útboðum vegna fákeppnismarkaðar.
Innkauparáð samþykkir með fimm atkvæðum að leggja til við bæjarráð að veita heimild til að fara í lokað útboð á malbiki.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita heimild til að fara í lokað útboð á malbiki og malbiksyfirlögnum í Kópavogi árið 2017.
Fundargerð í 5. liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 13. liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 1. lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 3. liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 7. liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 1. lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 11. liðum.
Lagt fram.
Frá svæðisskipulagsstjóra, dags. 12. apríl, lögð fram afgreiðsla svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 7. apríl sl. vegna brúar yfir Fossvog og mögulegri legu Borgarlínu yfir brúnna.
Lagt fram.
Staða og þróun húsnæðismála í Kópavogi og á höfuðborgarsvæðinu, kynning.
Umræður.
Lögð fram slysaskýrsla Samgöngustofu 2016. Einnig lagt fram minnisblað um flokkun hjólastígakerfisins, dags. 18. apríl.
Lagt fram.
Tillaga um stofnun verkefnahóps um mótun heildstæðrar samgöngustefnu fyrir Kópavog. Einnig lagt fram minnisblað um samgöngustefnu Kópavogsbæjar, dags. 18. apríl.
Bæjarráð samþykkir með 5 atkvæðum að stofna verkefnahóp um mótun heildstæðrar samgöngustefnu sem eftirtaldir skipi:
Theodóra S. Þorsteinsdóttir
Hjördís Johnson
Ása Richardsdóttir
Bjarki Valberg umhverfissviði
Sólveig Jóhannsdóttir umhverfissviði
Karl Eðvaldsson umhverfissviði
Birgir Sigurðsson umhverfissviði