Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Nýbýlavegur 22, American Style. FoodCo. hf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um nýtt rekstarleyfi

Málsnúmer: 1703295

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2868. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 19. apríl, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 2. mars, þar sem óskað er umsagnar um umsókn FoodCo hf., kt. 660302-2630 um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Nýbýlavegi 22, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 26. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetningar staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.