Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2868. fundur

á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Drangey

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Ólafur Þór Gunnarsson - aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Málefni Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs.

Kynning á lífeyrisskuldbindingum Kópavogsbæjar vegna Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar frá Vigfúsi Ásgeirssyni tryggingastærðfræðingi.

Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Mánaðarskýrslur 2017

Frá bæjarritara, lögð fram mánaðarskýrsla vegna starfsemi í janúar.

Lagt fram.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Hagasmári 3, XO. Exotic investments ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 19. apríl, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 8. mars, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Exotic investmens ehf., kt. 440315-2830, um nýtt rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Hagasmára 3, 201 Kópavogi. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgeiðslutími og staðsetning staðar sé innan þeirra marka sem lög og reglur sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

04

Nýbýlavegur 22, American Style. FoodCo. hf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um nýtt rekstarleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 19. apríl, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 2. mars, þar sem óskað er umsagnar um umsókn FoodCo hf., kt. 660302-2630 um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Nýbýlavegi 22, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 26. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgreiðslutími og staðsetningar staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

05

Skemmuvegur 32. Beiðni um umsögn vegna ökutækjaleigu

Frá lögfræðideild, dags. 19. apríl, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 9. mars, þar sem óskað er eftir umsögn um umsókn Gunnars Haraldssonar f.h. Cargo sendibílaleigu ehf., kt. 550900-2620, um rekstrarleyfi fyrir ökutækjaleigu með sjö bifreiðar að Skemmuvegi 32, 200 Kópavogi. Samkvæmt 3. gr. laga nr. 65/2015 um leigu skráningarskyldra ökutækja og 5. og 6. gr. rgl. um sama efni nr. 840/2015 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að aðkoma henti fyrir fyrirhugaða starfsemi, rekstrarleyfið er í samræmi við skipulag á umsóttu svæði og fjöldi bílastæða virðist nægja fyrir umsóttum fjölda ökutækja þar sem um endurnýjun á rekstrarleyfi er að ræða.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.

Ýmis erindi

06

Arðgreiðslur vegna ársins 2016

Frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf., dags. 19. apríl, lagt fram erindi um útgreiðslu arðs vegna rekstrarársins 2016.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

07

Skipulagsráð - 7. fundur frá 18.04.2017

Fundargerð í 18. liðum.

Lagt fram.


7.12 - 16111197 - Fagraþing 2. Breyting á deiliskipulagi.

Lögð fram tillaga ARK þing arkitekta fh. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar nr. 2 við Fagraþing. Í breytingunni felst að breyta núverandi einbýlishúsi í parhús. Jafnframt er lagt til að bætt verði við bílskýli norðvestan til í húsinu og á annari hæð verði svölum lokað að hluta. Fjöldi bílastæða breytist úr þremur stæðum í fimm og nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 0,34 í 0,43. Uppdrættir í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 12. apríl 2017.

Skipulagsráð samþykkir með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að kynna ofangreinda breytingu og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.


Fundargerðir nefnda

08

Fundargerð 845. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 16.12.2016

Fundargerð í 13. liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

09

Fundargerð 263. fundar stjórnar Strætó bs. frá 07.04.2017

Fundargerð í 8. liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

10

Fundargerð 442. fundar stjórnar SSH frá 03.04.2017

Fundargerð í 3. liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

11

Velferðarráð - 8. fundur frá 24.04.2017

Fundargerð í 9. liðum.

Lagt fram.


11.4 - 1702627 - Endurskoðun á reglum um fjárhagsaðstoð 2017

Velferðarráð samþykkir framlagða breytingartillögu fyrir sitt leyti.

Bæjarráð samþykkir framlagða breytingartillögu á reglum um fjárhagsaðastoð fyrir sitt leyti og vísar málinu til bæjarstjórnar.



11.9 - 1610412 - Sérstakur húsnæðisstuðningur

Lagt fram til upplýsingar

Velferðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að fella út 5. grein reglna um sérstakan húsnæðisstuðning.

Bæjarráð samþykkir fyrri sitt leyti að fella út 5. gr. reglna um sérstakan húsnæðisstuðning og vísar málinu til bæjarstjórnar.