Til baka í fundargerðir
Hagasmári 3, XO. Exotic investments ehf. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um nýtt rekstrarleyfi
Málsnúmer: 1703584
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2868. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 19. apríl, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 8. mars, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Exotic investmens ehf., kt. 440315-2830, um nýtt rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki II, að Hagasmára 3, 201 Kópavogi. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að afgeiðslutími og staðsetning staðar sé innan þeirra marka sem lög og reglur sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar.