Malbik 2017
Málsnúmer: 1704136
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2874. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags 16. mai, lagðar fram niðurstöður útboðs um malbiks yfirlagnir og malbik í Kópavogi 2017. Lagt er til að leitað verði samninga við Loftorku Reykjavík um malbiksyfirlagnir í Kópavogi og að leitað verði samninga við Hlaðbæ Colas um malbikskaup fyrir árið 2017.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að leitað verði samninga við Loftorku Reykjavík um malbiksyfirlagnir í Kópavogi og að leitað verði samninga við Hlaðbæ Colas um malbikskaup fyrir árið 2017.
02
Innkauparáð - 4. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags 16. mai, lagðar fram niðurstöður útboðs um malbiks yfirlagnir og malbik í Kópavogi 2017. Lagt er til að leitað verði samninga við Loftorku Reykjavík um malbiksyfirlagnir í Kópavogi og að leitað verði samninga við Hlaðbæ Colas um malbikskaup fyrir árið 2017.
Innkauparáð samþykir erindið og vísar því áfram til bæjarráðs.
03
Bæjarráð - 2867. fundur
Frá Stefáni L Stefánssyni, dags. 4. apríl, lagt fram erindi þar sem óskað eftir heimild Innkauparáðs til að fara í lokað útboð á malbiki. Síðastliðin ár hefur malbikun verið boðin út í lokuðum útboðum vegna fákeppnismarkaðar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita heimild til að fara í lokað útboð á malbiki og malbiksyfirlögnum í Kópavogi árið 2017.
04
Innkauparáð - 1. fundur
Frá Stefáni L Stefánssyni, dags. 4. apríl, lagt fram erindi þar sem óskað eftir heimild Innkauparáðs til að fara í lokað útboð á malbiki. Síðastliðin ár hefur malbikun verið boðin út í lokuðum útboðum vegna fákeppnismarkaðar.
Innkauparáð samþykkir með fimm atkvæðum að leggja til við bæjarráð að veita heimild til að fara í lokað útboð á malbiki.