Tillaga frá Ólafi Þ. Gunnarssyni. Breyting á bæjarmálasamþykkt, fjölgun bæjarfulltrúa
Málsnúmer: 17081667
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1162. fundur
Fundarhlé hófst kl. 18.02, fundi fram haldið kl. 18.05.
Ármann Kr. Ólafsson leggur fram frávísunartillögu við tillögu Ólafs Þórs Gunnarssonar.
Bæjarstjórn samþykkir frávísunartillögu með sjö atkvæðum gegn fjórum atkvæðum Birkis Jóns Jónssonar, Ólafs Þórs Gunnarssonar, Pétur Hrafns Sigurðssonar og Bergljótar Kristinsdóttur.
Fundarhlé hófst kl. 18.08, fundi fram haldið kl. 18.17.
Bókun:
"Tillögu um lýðræðisumbætur í bæjarstjórn er hér vísað frá með fundartæknilegu ofbeldi. Þann tíma sem undirritaður hefur verið í bæjarstjórn hefur umræða um bæjarmálasamþykkt aldrei verið afgreidd með þessum hætti heldur ávallt vísað til annarrar umræðu. Eðli bæjarmálasamþykktar er með þeim hætti að löggjafinn telur eðlilegt að tvær umræður fari fram um slíkar tillögur. Hér ákveður meirihluti bæjarstjórnar að taka ekki umræðuna, taka ekki afstöðu og brjóta því með yfirgengilegum hætti lýðræðislegar leikreglur.
Ólafur Þór Gunnarsson, Pétur Hrafn Sigurðsson, Bergljót Kristinsdóttir og
Birkir Jón Jónsson".
Fundarhlé hófst kl. 18.18, fundi fram haldið kl. 18.28.
Bókun:
Einungis er rúmt ár síðan bæjarmálasamþykkt Kópavogs var breytt í þá veru að hækka starfshlutfall bæjarfulltrúa, í ljósi þess að umfang starfs bæjarfulltrúa hefur aukist með fjölgun íbúa og fjölgun verkefna. Við vinnu á þessum breytingum á bæjarmálasamþykkt var ákveðið, af öllum í bæjarstjórn, að fjölga ekki bæjarfulltrúum. Engin slík tillaga var lögð fram en þó sat bæjarfulltrúinn Ólafur Þór Gunnarsson í forsætisnefnd. Í minnisblaði bæjarfulltrúans varðandi þetta málefni var ekki minnst einu orði á fjölgun bæjarfulltrúa. Það sem kemur þó mest á óvart er að bæjarfulltrúinn skyldi ekki hafa nokkra samvinnu um fyrirhugaðar breytingar á bæjarmálasamþykktinni eins og löng hefð er fyrir í bæjarstjórn og að hann skyldi ekki leggja fram kostnaðaútreikninga, en varlega áætlað myndi tillagan kosta 100 m.kr á einu kjörtímabili.
Framlögð tillaga er rof á sáttaferli sem bæjarfulltrúinn tók þátt í. Því er hafnað að hér sé verið að beita fundartæknilegu ofbeldi. Umræða fór fram í bæjarráði, forsætisnefnd og bæjarstjórn.´
Ármann Kr. Ólafsson, Sverrir Óskarsson, Margrét Friðriksdóttir, Theódóra S. Þorsteinsdóttir, Karen E. Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson og Guðmundur G. Geirdal.
Bókun:
Í 27.gr sveitarstjórnarlaga segir:
"27. gr. Réttur til að bera upp mál.
Sveitarstjórnarmaður á rétt á að tekið verði á dagskrá sveitarstjórnarfundar hvert það málefni sem sérstaklega varðar hagsmuni sveitarfélagsins eða verkefni þess."
Og einnig í 18. gr
"18. gr. Tvær umræður í sveitarstjórn.
Sveitarstjórn skal hafa tvær umræður, með a.m.k. einnar viku millibili, um:
1. samþykktir og aðrar reglur sem samkvæmt lögum eiga að hljóta staðfestingu ráðherra,
2. staðfestingu ársreiknings,
3. stefnumarkandi áætlanir sem gilda eiga til lengri tíma og taka til sveitarfélags í heild eða meiri hluta þess,
4. tillögu um sameiningu við annað sveitarfélag skv. 2. mgr. 120. gr.
Sveitarstjórn skal hafa tvær umræður, með a.m.k. tveggja vikna millibili, um fjárhagsáætlanir sveitarfélagsins skv. 62. gr. Ákvæði þetta gildir þó ekki um samþykkt viðauka við fjárhagsáætlanir."
Meirihluta Bjartrar framtíðar og Sjálfstæðisflokksins finnst hinsvegar engin þörf á að fara eftir þessum grundvallar þáttum í íslenskri stjórnsýslu, jafnvel ekki þegar undir er sjálf bæjarmálasamþykktin.
Ólafur Þór Gunnarsson
Fundarhlé hófst kl. 18.33, fundi fram haldið kl. 18.36.
Theódóra S. Þorsteinsdóttir vék af fundi og í hennar stað kom Hreiðar Oddsson.
Bókun:
Tvær umræður eru öryggisventill fyrir meiriháttar breytingar og samþykktir. Bæjarstórn er ekki tilbúin í slíkar breytingar.
Ármann Kr. Ólafsson, Sverrir Óskarsson, Margrét Friðriksdóttir, Hreiðar Oddsson, Karen E. Halldórsdóttir, Hjördís Ýr Johnson og Guðmundur G. Geirdal.
Bókun:
Það er sorglegt að bæjarstjóra þyki breytingar á bæjarmálasamþykkt léttvægt atriði.
Ólafur Þór Gunnarsson
Fundarhlé hófst kl. 18.40, fundi fram haldið kl. 19.10.
02
Bæjarstjórn - 1162. fundur
Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni, bæjarfulltrúa um breytingu á bæjarmálasamþykkt Kópavogs. Bæjarráð samþykkir að 1. grein Bæjarmálasamþykktar Kópavogs hljóði þannig: 1. grein Skipan bæjarstjórnar Bæjarstjórn Kópavogs er skipuð 15 fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum sveitarfélagsins samkvæmt lögum um kosningar til bæjarstjórna. Jafnframt að 27. grein orðist svo: 27. gr. Kosning bæjarráðs. Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa sjö aðalmenn og jafnmarga varamenn í bæjarráð til eins árs. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð, sbr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga. Þeir bæjarfulltrúar og varabæjarfulltrúar, sem kosningu hafa hlotið af sama lista og hinn kjörni bæjarráðsmaður eru varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann bæjarráðs úr hópi kjörinna bæjarráðsmanna. Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs. Kosning í bæjarráð skal vera leynileg og bundin hlutfallskosning sé þess óskað. Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráðið. Erindinu var vísað til forsætisnefndar í bæjarráði 24.ágúst. Forsætisnefnd frestaði erindinu á fundi sínum sl. 6. september.
Sjá dagskrárlið nr. 1.
03
Forsætisnefnd - 100. fundur
Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni, bæjarfulltrúa um breytingu á bæjarmálasamþykkt Kópavogs. Bæjarráð samþykkir að 1. grein Bæjarmálasamþykktar Kópavogs hljóði þannig: 1. grein Skipan bæjarstjórnar Bæjarstjórn Kópavogs er skipuð 15 fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum sveitarfélagsins samkvæmt lögum um kosningar til bæjarstjórna. Jafnframt að 27. grein orðist svo: 27. gr. Kosning bæjarráðs. Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa sjö aðalmenn og jafnmarga varamenn í bæjarráð til eins árs. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð, sbr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga. Þeir bæjarfulltrúar og varabæjarfulltrúar, sem kosningu hafa hlotið af sama lista og hinn kjörni bæjarráðsmaður eru varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann bæjarráðs úr hópi kjörinna bæjarráðsmanna. Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs. Kosning í bæjarráð skal vera leynileg og bundin hlutfallskosning sé þess óskað. Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráðið. Erindinu var vísað til forsætisnefndar í bæjarráði 24.ágúst. Forsætisnefnd frestaði erindinu á fundi sínum sl. 6. september.
Forsætisnefnd samþykkir með þremur atkvæðum að vísa málinu til bæjarstjórnar til afgreiðslu.
Bókun forsætisnefndar:
Forsætisnefnd tekur ekki efnislega afstöðu til framlagðrar tillögu og telur eðlilegt að tillagan verði rædd á vettvangi bæjarstjórnar. Þá óskar forsætisnefnd eftir samantekt á kostnaði við fjölgun bæjarfulltrúa annars vegar upp í 13 bæjarfulltrúa og hinsvegar upp í 15 bæjarfulltrúa. Kostnaðargreining verði tilbúin fyrir bæjarstjórnarfund 26. september n.k.
04
Forsætisnefnd - 99. fundur
Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni, bæjarfulltrúa um breytingu á bæjarmálasamþykkt Kópavogs. Bæjarráð samþykkir að 1. grein Bæjarmálasamþykktar Kópavogs hljóði þannig: 1. grein Skipan bæjarstjórnar Bæjarstjórn Kópavogs er skipuð 15 fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum sveitarfélagsins samkvæmt lögum um kosningar til bæjarstjórna. Jafnframt að 27. grein orðist svo: 27. gr. Kosning bæjarráðs. Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa sjö aðalmenn og jafnmarga varamenn í bæjarráð til eins árs. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð, sbr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga. Þeir bæjarfulltrúar og varabæjarfulltrúar, sem kosningu hafa hlotið af sama lista og hinn kjörni bæjarráðsmaður eru varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann bæjarráðs úr hópi kjörinna bæjarráðsmanna. Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs. Kosning í bæjarráð skal vera leynileg og bundin hlutfallskosning sé þess óskað. Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráðið. Erindinu var vísað til forsætisnefndar í bæjarráði 24.ágúst.
Frestað til næsta fundar.
05
Bæjarráð - 2880. fundur
Tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni, bæjarfulltrúa um breytingu á bæjarmálasamþykkt Kópavogs.
Bæjarráð samþykkir að 1. grein Bæjarmálasamþykktar Kópavogs hljóði þannig:
1. grein
Skipan bæjarstjórnar
Bæjarstjórn Kópavogs er skipuð 15 fulltrúum, sem kjörnir eru lýðræðislegri kosningu af íbúum sveitarfélagsins samkvæmt lögum um kosningar til bæjarstjórna.
Jafnframt að 27. grein orðist svo:
27. gr. Kosning bæjarráðs.
Bæjarstjórn skal á fyrsta fundi að afloknum sveitarstjórnarkosningum kjósa sjö aðalmenn og jafnmarga varamenn í bæjarráð til eins árs. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn í bæjarráð, sbr. 36. gr. sveitarstjórnarlaga. Þeir bæjarfulltrúar og varabæjarfulltrúar, sem kosningu hafa hlotið af sama lista og hinn kjörni bæjarráðsmaður eru varamenn hans í þeirri röð sem þeir skipuðu listann. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann bæjarráðs úr hópi kjörinna bæjarráðsmanna. Bæjarráð getur ráðið sér fundarritara utan bæjarráðs. Kosning í bæjarráð skal vera leynileg og bundin hlutfallskosning sé þess óskað. Bæjarstjóri situr fundi bæjarráðs með málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hefur hann aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráðið.
Vísað til forsætisnefndar.