Til baka í fundargerðir
Umsókn um nýtingu Frístundastyrks í Hrafninum
Málsnúmer: 1710545
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 76. fundur
Lögð fram beiðni frá íbúa í Kópavogi dags. 17. júlí sl., þar sem óskað er heimildar til að ráðstafa frístundastyrk barna sinni vegna 6. vikna sumarnámskeiða hjá Hrafninum, en Hrafninn er frístundaklúbbur fyrir börn með sérþarfir. Börnin geti ekki nýtt sér önnur frístundaúrræði né íþróttanámskeið vegna raskana þeirra.
Íþróttaráð samþykkir að heimila Frístundaklúbbinum Hrafninum aðild að Frístundastyrkjakerfi Kópavogsbæjar frá og með þessu ári með sumarnámskeið á þeirra vegum.