Íþróttaráð - 76. fundur
á Digranesvegi 1, fundarherbergi - Digranes
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Gunnar Guðmundsson - starfsmaður nefndar
- Jón Júlíusson - starfsmaður nefndar
- Jón Finnbogason - aðalfulltrúi
- Hlín Bjarnadóttir - aðalfulltrúi
- Árni Þorsteinsson - varafulltrúi
- Matthías Páll Imsland - aðalfulltrúi
- Rannveig Bjarnadóttir - aðalfulltrúi
- Gísli Baldvinsson - vara áheyrnarfulltrúi
Ritari
- Jón Júlíusson
Dagskrá fundar
Lögð fyrir fundinn gögn sem send hafa verið til íþróttafélaganna, þar sem óskað er upplýsinga um upphæðir og breytingar á æfingagjöldum félaganna fyrir tímabilin 2016-2018.
Umræður um kostnað við íþróttaiðkun barna og ungmenna í Kópavogi. Frekari umræðu frestað þar til frekari gögn liggja fyrir.
Lögð fram beiðni frá íbúa í Kópavogi dags. 17. júlí sl., þar sem óskað er heimildar til að ráðstafa frístundastyrk barna sinni vegna 6. vikna sumarnámskeiða hjá Hrafninum, en Hrafninn er frístundaklúbbur fyrir börn með sérþarfir. Börnin geti ekki nýtt sér önnur frístundaúrræði né íþróttanámskeið vegna raskana þeirra.
Íþróttaráð samþykkir að heimila Frístundaklúbbinum Hrafninum aðild að Frístundastyrkjakerfi Kópavogsbæjar frá og með þessu ári með sumarnámskeið á þeirra vegum.
Tekin til umræðu greinargerð VSÓ um nýtingu knattspyrnudeildar Breiðabliks á þeim mannvirkjum sem deildin hefur til afnota yfir vetrartímann.
Jafnframt lagt fram erindi Breiðabliks vegna ofangreindrar greinargerðar.
Umræður um framkomna greinargerð VSÓ sem og viðbrögð félagsins við þeim tillögum sem fram koma í greinargerðinni.
Fyrir fundinum lágu gögn um kjör íþróttakonu og íþróttakarls Kópavogs sem liggja til grundvallar tilnefningum íþróttafólksins sem og vegna vefkosningar vegna kjörsins í ár.
Íþróttaráð samþykkir að í ár gildi sömu reglur fyrir kjörið og á síðastliðnu ári og felur starfsmönnum að kalla eftir tilnefningum íþróttafélaganna sem lagðar verði fram á næsta fundi.
Lagt fram erindi frá Golfklúbbi Garðabæjar og Kópavogs, þar sem sótt er um syrk vegna þátttöku klúbbsins á Evrópumeistaramóti klúbbliða sem haldið var af EGA í Frakklandi 26.-28. október sl.
Íþróttaráð samþykkir að veita sérstyrk samkvæmt viðmiðum um styrki vegna þátttöku í Evrópukeppnum félagsliða/klúbba, 180 þús kr.
Lögð fram yfirlitstafla með umsóknum vegna sérstyrkja haustið 2017, þar sem fram koma tillögur íþróttadeildar um styrki í samræmi við uppgefin viðmið frá fyrri úthlutunum.
Íþróttaráð samþykkir framlagða tillögu með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.
Lagt fram erindi frá Gerplu, þar sem óskað er eftir styrk vegna fyrirlestra fyrir þjálfara keppnishópa félagsins.
Íþróttaráð sér sér ekki fært að verða við styrkumsókninni.
08
Sprettur, sérstyrkir haust 17. Umsókn um styrk v/ sérverkefnis - Reiðnámskeið fyrir fatlað fólk
Lagt fram erindi frá Hestamannafélaginu Spretti, þar sem óskað er eftir styrk vegna sérverkefnis - Reiðnámskeið fyrir fatlað fólk,- sem félagið stefnir að því að halda á komandi ári.
Íþróttaráð er mjög jákvætt fyrir erindi eins og hér er að ræða og óskar eftir frekari gögnum til að geta tekið endanlega afstöðu til málsins þegar þau liggja fyrir.
09
Breiðablik-Knatspyrnudeild, sérstyrkir haust 17. Umsókn um styrk v/ sérverkefnis - Kaup á Pro Athlete
Lagt fram erindi frá knattspyrnudeild Breiðabliks, þar sem óskað er eftir styrk vegna sérverkefnis- þ.e. kaup á Pro Athlete búnaði, til stuðnings Sideline Organanizer sem félagið er með í notkun í dag.
Íþróttaráð sér sér ekki fært að verða við styrkumsókninni.
10
Breiðablik-Knattspyrnudeild, sérstyrkir haust 17. Umsókn um styrk v/ þátttöku U-19 karla í Evrópukeppni félagsliða.
Lagt fram erindi frá knattspyrnudeild Breiðabliks, þar sem óskað er um styrk vegna þátttöku U-19 karlaliði félagins í Evrópukeppni félagsliða.
Íþróttaráð sér sér ekki fært að verða við styrkumsókninni.
11
Breiðablik-Knattspyrnudeild, sérstyrkir haust 17. Umsókn um styrk v/ Markmannsnámskeiðs fyrir stúlkur.
Lagt fram erindi frá knattspyrnudeild Breiðabliks, þar sem óskað er eftir styrk vegna markmannsnámskeiða fyrir stúlkur.
Íþróttaráð samþykkir styrk allt að 100 þús. kr., gegn framvísun gagna um útlagðan kostnað við námskeiðin.
12
Breiðablik-Knattspyrnudeild, sérstyrkir haust 17. Umsókn um styrk v/ tveggja dómaranámskeiða.
Lagt fram erindi frá knattspyrnudeild Breiðabliks, þar sem óskað er um styrk vegna tveggja dómaranámskeiða, annars vegar fyrir foreldra og hins vegar fyrir iðkendur 3. flokks deildarinnar.
Íþróttaráð sér sér ekki fært að verða við styrkumsókninni
13
Breiðablik-Knattspyrnudeild, sérstyrkir haust 17. Umsókn um styrk v/ þjálfaranámskeiða hjá 11 þjálfara.
Lagt fram erindi frá knattspyrnudeild Breiðabliks, þar sem óskað er eftir styrk vegna þjálfaranámskeiða 11
þjálfara á vegum KSÍ.
Íþróttaráð samþykkir styrk að upphæð 165 þús. kr.
Lagt fram erindi frá Knattspyrnudeild HK, þar sem óskað er eftir styrk vegna þátttöku í þjálfaranámskeiði á vegum KSÍ í febr.sl.
Íþróttaráð samþykkir styrk að upphæð 15 þús. kr.
Lagt fram erindi frá Handknattleiksdeild HK, þar sem óskað er eftir styrk vegna þjálfaranámskeiðs á vegum HSÍ
Íþróttaráð samþykkir styrk að upphæð 60 þús. kr.
Lagt fram erindi frá Borðtennisdeild HK, þar sem óskað er eftir styrk vegna kaupa á nýjum borðtennisborðum.
Íþróttaráð sér sér ekki fært að verða við styrkumsókninni.
17
HK-Borðtennisdeild, sérstyrkir haust 17. Umsókn um þjálfarastyrk v/ Bsc nám í borðtennisfræðum
Lagt fram erindi frá Borðtennisdeild HK, þar sem óskað er eftir styrk vegna BSC náms þjálfara í borðtennisfræðum.
Íþróttaráð sér sér ekki fært að verða við styrkumsókninni.
Lagt fram erindi frá Gerplu, þar sem óskað er eftir styrk vegna menntunnar í næringafræði.
Íþróttaráð sér sér ekki fært að verða við styrkumsókninni.
19
Gerpla-sérstyrkir haust 2017-umsókn um styrk v.sérverkefnis- Þróun og hönnun kennsluefnis fyrir Parkour.
Lagt fram erindi frá Gerplu þar sem óskað er eftir styrk vegna v/sérverkefnis- Þróun og hönnun kennsluefnis fyrir Parkour.
Íþróttaráð sér sér ekki fært að verða við styrkumsókninni.
20
Gerpla-sérstyrkir haust 2017-umsókn um styrk v/þróunarverkefnis- "Að finnast þú mikilvægur í stóru félagi"
Lagt fram erindi frá Gerplu, þar sem óskað er eftir styrk vegna þróunarverkefnis- "Að finnast þú mikilvægur í stóru félagi"
Íþróttaráð samþykkir að veita þessu nýbreytniverkefni styrk að upphæð 200 þús. kr.
Lagt fram erindi frá Gerplu, þar sem óskað er eftir styrk vegna þátttöku í dómaranámskeiðum á vegum FSÍ dagana 20.-25. sept. sl.
Íþróttaráð samþykkir styrk að upphæð 40 þús. kr.
Lagt fram erindi frá Gerplu, þar sem óskað er eftir styrk vegna þjálfaranámskeiðs á vegum Evrópska Fimleikasambandsins UEG, á Ítalíu, dagana 15.-22.júlí 2017, en 3 þjálfarar sóttu námskeiðið.
Íþróttaráð samþykkir styrk að upphæð 90 þús. kr.
Lagt fram erindi frá Gerplu, þar sem óskað er eftir styrk vegna þjálfaranámskeiðs- sérgreinahluta FSÍ 2B, 9.-10.sept. sl.
Íþróttaráð samþykkir styrk að upphæð 90 þús. kr.
Lagt fram erindi frá Gerplu, þar sem óskað er eftir styrk vegna þjálfaranámskeiðs -sérgreinahluti FSÍ 1C.
Íþróttaráð samþykkir styrk að upphæð 75 þús. kr.
Lagt fram erindi frá Gerplu, þar sem óskað er eftir styrk vegna þjálfaranámskeiðs stjórnenda og leiðbeinenda leikskólahópa/krílahópa 3-5 ára.
Íþróttaráð samþykkir styrk að upphæð 30 þús. kr.
26
Gerpla-sérstyrkir haust 2017-umsókn um styrk vegna þjálfaranámskeiða - Móttökunámskeiðs FSÍ
Lagt fram erindi frá Gerplu, þar sem óskað er eftir styrk vegna þjálfaranámskeiðs á vegum FSÍ.
Íþróttaráð samþykkir styrk að upphæð 20 þús. kr.
Lagt fram erindi frá Gerplu, þar sem óskað er eftir styrk vegna 2ja þjálfara sem sóttu þjálfaranámskeið- Móttökunámskeið á vegum FSÍ 1A.
Íþróttaráð samþykkir styrk að upphæð 120 þús. kr.