Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Engihjalli 8, Riddarinn Ölstofa. Umsagnarbeiðni vegna nýrrar umsóknar um rekstrarleyfi

Málsnúmer: 1711336

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2907. fundur

Frá lögfræðideild, dags. 6. mars, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 15. september, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Riddarans Ölstofu, kt. 510909-1510, um nýtt rekstrarleyfi fyrir umfangslítinn áfengisveitingastað í flokki II, að Engihjalla 8, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 26. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1.tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitastjórn, sem umsagnaraðili, að staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar og staðfestir að umfang rekstrarleyfisins samrýmist stefnu skipulags.