Bæjarráð - 2907. fundur
á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
- Margrét Júlía Rafnsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Páll Magnússon - bæjarritari
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 8. mars, lagt fram erindi er varðar lóðarleigusamninga Nýbýlavegs 2, 4, 6, 8 og 10, vegna breyttra lóðarmarka.
Bæjarráð samþykkir erindið með fimm atkvæðum.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 12. mars, lögð fram umsögn er varðar gervigrasið í Kórnum.
Lagt fram.
Kl. 8.40 vék Birkir Jón Jónsson af fundi.
Samkeppniseftirlitið kemur í heimsókn og kynnir "Samkeppni við meðhöndlun sorps".
Lagt fram.
Frá lögfræðideild, dags. 6. mars, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 15. september, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Riddarans Ölstofu, kt. 510909-1510, um nýtt rekstrarleyfi fyrir umfangslítinn áfengisveitingastað í flokki II, að Engihjalla 8, 200 Kópavogi, skv. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 26. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1.tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitastjórn, sem umsagnaraðili, að staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til minnisblaðs lögfræðideildar og staðfestir að umfang rekstrarleyfisins samrýmist stefnu skipulags.
Frá lögfræðideild, dags. 12. mars, lagt fram erindi f.h. lóðarhafa Melahvarfs 3, Gunnars Árnasonar, um heimild til veðsetningar á 3. veðrétt á lóðina.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að veitt verði umbeðið veðleyfi.
Frá Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 6. mars, lagt fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um aðgengi að stafrænum smiðjum, 236. mál (þingmannamál).
Lagt fram.
07
Tillaga til þingsályktunar um skiptingu útsvarstekna milli sveitarfélaga, 200. mál. Umsagnarbeiðni
Frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 8. mars, lagt fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um skiptingu útsvarstekna milli sveitarfélaga, 200. mál (þingmannamál).
Lagt fram.
08
Frumvarp til laga um heilbrigðisþjónustu (réttur til einbýlis og sambúðar við maka á öldrunarstofnunum), 178. mál. Umsagnarbeiðni
Frá Velferðarnefnd Alþingis, dags. 6. mars, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um heilbrigðisþjónustu (réttur til einbýlis og sambúðar við maka á öldrunarstofnunum), 178. mál (þingmannamál).
Lagt fram.
Frá íbúum á og við umrædda landsspildu í Kvosinni - á svæðinu milli vants og vegar, dags. 11. mars, íbúa að Vatnsendabletts 6, dags. 11. mars og íbúa að Vantsendabletts 3, dags. 10. mars, lagðar fram athugasemdir varðandi breytingu á deiliskipulagi frá 2001 varðandi svæðið milli vatns og vegar.
Bæjarráð vísar málinu til skipulagsráðs til úrvinnslu.
Frá verkefnisstjóra Nordjobb á Íslandi, dags. 2. mars, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir að Kópavogsbær taki þátt í verkefninu og ráði ungt fólk frá hinum Norðurlöndunum til starfa sumarið 2018.
Bæjarráð vísar erindinu með fjórum atkvæðum til starfsmannastjóra til afgreiðslu.
Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 9 liðum.
Lagt fram.
Lagt fram.
14.4 - 1801264 - Reglur um fjárhagsaðstoð. Tillögur um breytingar á 17. 28. gr. og 30. gr.
Velferðarráð samþykkir framlagðar tillögur um breytingar á 17.gr, 28 gr. og 30 gr. í reglum Kópavogsbæjar um fjárhagsaðstoð. Breytingar á 30 gr. varða hækkun á viðmiðunarfjárhæð að undanskildum barnabótum og veita aðstoð í 12 mánuði í stað 9. Þessar breytingar eru sérstaklega til þess fallnar að styðja við barnafjölskyldur sem búa við fátækt.
Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.
14.5 - 1802502 - Tillaga um breytingu á stigakerfi félagslegra leiguíbúða
Velferðarráð samþykkir tillögu að breytingum á tekjuviðmiðum í stigakerfi félagslegra leiguíbúða.
Bæjarráð vísar afgreiðslu til bæjarstjórnar.
Fundargerð í 7 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 4 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 10 liðum.
Lagt fram.
18
Óskað eftir upplýsingum varðandi uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Kópavogi á yfirstandandi kjörtímabili. Beiðni frá Pétri Hrafni Sigurðssyni bæjarfulltrúa
Frá Pétri Hrafni Sigurðssyni, óskar eftir upplýsingum varðandi uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Kópavogi á yfirstandani kjörtímabili.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, lagði fram eftirfarandi bókun:
"Á sviðstjórafundi þann 5. mars sl. fól undirritaður bæjarritara og fjármálastjóra bæjarins að skrifa greinargerð um framvindu húsnæðismála í kjölfar húsnæðisskýrslu, sem unnin var í þverpólitískri sátt allra flokka í bæjarstjórn Kópavogs. Greinargerðin mun liggja fyrir fljótlega en hún mun innihalda svör við þeim fyrirspurnum sem hér eru lagðar fram af bæjarfulltrúanum.
Ármann Kr. Ólafsson"