Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Ósk um viðbótarúthlutun í Fífunni vorið 2018

Málsnúmer: 1711636

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2895. fundur

Lagt fram erindi frá framkvæmdastjóra Breiðabliks, dags. 23.11 sl., þar óskað er eftir æfingatímum í Fífunni á þriðju- og fimmtudögum frá kl. 21:00-22:00 út vorönn 2018, til viðbótar þeim æfingatímum sem úthlutað var til félagsins sept. sl. Breiðablik mun leita leiða til að byrja fyrr á daginn (kl. 14:00) með æfingar yngri flokka til að auka nýtinguna í Fífunni eins og kostur er.

Bæjarráð samþykkir erindi Breiðabliks með fimm atkvæðum.

02

Íþróttaráð - 77. fundur

Lagt fram erindi frá framkvæmdastjóra Breiðabliks, dags. 23.11 sl., þar óskað er eftir æfingatímum í Fífunni á þriðju- og fimmtudögum frá kl. 21:00-22:00 út vorönn 2018, til viðbótar þeim æfingatímum sem úthlutað var til félagsins sept. sl. Breiðablik mun leita leiða til að byrja fyrr á daginn (kl. 14:00) með æfingar yngri flokka til að auka nýtinguna í Fífunni eins og kostur er.

Íþróttaráð tekur vel í beiðni félagsins fyrir sitt leiti og vísar erindinu til bæjarráðs til endalegar afgreiðslu.

Íþróttaráð óskar eftir því að íþróttadeild taki saman yfirlit yfir breytingar á fjölda æfingartíma sem úthlutað hefur verið til knattspyrnudeildar Breiðabliks frá úthlutun haustið 2014 til dagsins í dag.