Hlíðarvegur 11 íbúð 0102 Fastanúmer 206-2142 Eignaumsjón. Framhaldsmál.
Málsnúmer: 1712496
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2965. fundur
Frá fjármálastjóra, dags. 1. júlí, lögð fram beiðni um heimild til sölu félagslegrar íbúðar að Hlíðarvegi 11, þar sem óskað er eftir að bæjarráð veiti fjármálastjóra heimild til að fullgilda kaupsamning vegna sölu fasteignarinnar. Bæjarráð frestaði málinu á fundi sínum þann 11. júlí sl.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum beiðni um heimild til sölu íbúðar að Hlíðarvegi 11.
Theódóra Þorsteinsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
"Í framhaldi af þessu máli þá óska ég eftir því að sjá stefnu/áætlanir um viðhald fasteigna sem eru í eigu Kópavogsbæjar og eru í félagslegri leigu. Hvort við séum ekki örugglega að greiða í hússjóð til þess að sinna viðhaldi með reglubundnu hætti í öllum tilfellum.
Theódóra Þorsteinsdóttir"
02
Bæjarráð - 2964. fundur
Frá fjármálastjóra, dags. 1 júlí, lögð fram beiðni um heimild til sölu félagslegrar íbúðar að Hlíðarvegi 11, þar sem óskað er eftir að bæjarráð veiti fjármálastjóra heimild til að fullgilda kaupsamning vegna sölu fasteignarinnar.
Bæjarráð ákveður að fresta málinu.
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar bókar:
,,Stefna bæjarins hefur verið sú að eiga ekki yfir ákveðnu hlutfalli íbúða í fjölbýli þegar keypt er nýtt húsnæði. Sú stefna á ekki við um eldra húsnæði í eigu bæjarins og því ekki rök fyrir sölunni að íbúðin sé í þríbýlishúsi og að kominn sé tími á viðhald.
Því mun ég greiða atkvæði gegn sölu íbúðarinnar.
Pétur Hrafn Sigurðsson
bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar"
Bæjarfulltrúi BF Viðreisnar bókar:
,,Ég óska eftir yfirliti yfir fjölda íbúða í sambærilegum húsum fyrir næsta fund bæjarráðs
Theodóra S. Þorsteinsdóttir
bæjarfulltrúi BF Viðreisnar"