Bæjarráð - 2964. fundur
á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Páll Magnússon - bæjarritari
- Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - lögfræðingur
Ritari
- Ása A. Kristjánsdóttir
Samkvæmt 35. gr. laga nr. 135/2011 og 32. gr. bæjarmálasamþykktar Kópavogsbæjar fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella í sumarleyfi hennar.
Dagskrá fundar
Frá félagsmálaráðuneyti, dags. 2. júlí, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir viðræðum við Kópavogsbæ um yfirtöku á rekstri þjónustu við fatlaða íbúa Kópavogsbrautar 5a frá og með næstu áramótum.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að ganga til viðræðna við félagsmálaráðuneyti um yfirtöku á rekstri við fatlaða íbúa við Kópavogsbraut.
Frá fjármálastjóra, lögð fram mánaðarskýrsla fyrir maí.
Lagt fram.
Frá fjármálastjóra, dags. 1 júlí, lögð fram beiðni um heimild til sölu félagslegrar íbúðar að Hlíðarvegi 11, þar sem óskað er eftir að bæjarráð veiti fjármálastjóra heimild til að fullgilda kaupsamning vegna sölu fasteignarinnar.
Bæjarráð ákveður að fresta málinu.
Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar bókar:
,,Stefna bæjarins hefur verið sú að eiga ekki yfir ákveðnu hlutfalli íbúða í fjölbýli þegar keypt er nýtt húsnæði. Sú stefna á ekki við um eldra húsnæði í eigu bæjarins og því ekki rök fyrir sölunni að íbúðin sé í þríbýlishúsi og að kominn sé tími á viðhald.
Því mun ég greiða atkvæði gegn sölu íbúðarinnar.
Pétur Hrafn Sigurðsson
bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar"
Bæjarfulltrúi BF Viðreisnar bókar:
,,Ég óska eftir yfirliti yfir fjölda íbúða í sambærilegum húsum fyrir næsta fund bæjarráðs
Theodóra S. Þorsteinsdóttir
bæjarfulltrúi BF Viðreisnar"
04
Lindasmári 9, íbúð 102. Kaup á félagslegri leiguíbúð. Óskað eftir viðræðum við fjármálastjóra
Frá fjármálastjóra, dags. 8. júlí, lögð fram beiðni um heimild til sölu félagslegrar íbúðar að Lindasmára 9, þar sem óskað er eftir að bæjarráð veiti fjármálastjóra heimild til að fullgilda kaupsamning vegna sölu fasteignarinnar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að heimila sölu á Lindasmára 9 og veitir fjármálastjóra heimild til að fullgilda kaupsamning vegna sölu á fasteigninni.
05
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar um mælingar á frammistöðu tengdum stefnumótun Kópavogsbæjar
Frá bæjarritara, dags. 3. júlí, lagt fram svar við fyrirspurn fulltrúa Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar um Framfaravogina, sem lögð var fram á fundi bæjarráðs þann 27. júní sl.
Lagt fram.
Fulltrúar Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar þakka veitt svör.
Frá bæjarritara, dags. 3. júlí, lagt fram svar við fyrirspurn fulltrúa BF Viðreisnar, Samfylkingar og Pírata um gæðamál sem lögð var fram á fundi bæjarráðs þann 27. júní sl.
Lagt fram.
Frá bæjarlögmanni, dags. 8. júlí, lögð fram umsókn um hesthúsalóðina Markarveg 7 frá Valsteini Stefánssyni. Lagt er til að bæjarráð samþykki úthlutun lóðarinnar til umsækjanda.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að úthluta lóðinni Markarvegi 7 til Valsteins Stefánssonar.
Frá lögfræðideild, dags. 8. júlí, lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 17/2019 þar sem kærð var ákvörðun bæjarstjórnar Kópavogs um að samþykkja framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdum við gerð sparkvallar og stíga við Austurkór.
Lagt fram.
Frá lögfræðideild, dags. 9. júlí, lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar um upplýsingamál í máli nr. 18110017 þar sem kærð var synjun um aðgang að gögnum.
Lagt fram.
Frá sviðsstjóra menntasviðs og deildarstjóra leikskóladeildar, dags. 9. júlí, lögð fram tillaga að ráðningu leikskólastjóra Sólhvarfa.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að Eyja Bryngeirsdóttir verði ráðin leikskólastjóri Sólhvarfa.
Frá gæðastjóra, lögð fram skýrsla um Rýni stjórnenda 2018.
Lagt fram.
Frá gæðastjóra, lögð fram drög að samþykkt bæjarstjórnar um gæðamál fyrir árið 2019. Lagt er til að við fyrri markmið bætist markmið um innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna.
Bæjarráð samþykkir framlögð drög að samþykkt um um gæðamál fyrir 2019 með 5 atkvæðum.
Frá verkefnastjóra stjórnsýslusviðs, dags. 19. júní, lagt fram minnisblað um styrki til félaga og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts af fasteignum þar sem fram fer starfsemi sem ekki er rekin í ágóðaskyni sem óskað var eftir á fundi bæjarráðs þann 13. júní sl.
Lagt fram.
14
Skíðaskáli Lækjarbotnum. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá verkefnastjóra stjórnsýslusviðs, dags. 8. júlí, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Skíðadeildar Víkings um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til styrkumsókn að upphæð kr. 979.050,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita Skíðadeild Víkings styrk til greiðslu fasteignaskatts að upphæð kr. 979.050.-.
15
Lækjarbotnar. Umsókn um styrkveitingu félaga- og félagasamtaka til greiðslu fasteignaskatts
Frá verkefnastjóra stjórnsýslusviðs, dags. 8. júlí, lögð fram tillaga að afgreiðslu umsóknar Glímufélagsins Ármanns um styrk til greiðslu fasteignaskatts. Lagt er til styrkumsókn að upphæð kr. 1.334.790,-. verði samþykkt enda fellur starfsemi félagsins að reglum Kópavogsbæjar um styrkveitingar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita Glímufélaginu Ármanni styrk til greiðslu fasteignaskatts að upphæð kr. 1.334.790.-.
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 2. júlí, lagðar fram niðurstöður útboðs í verkið "Kársnesskóli jarðvinna". Lagt er til að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Óskatak ehf. um framkvæmd verksins.
Bæjarráð samþykkir með 4 atkvæðum að ganga til samninga við lægstbjóðanda Óskatak ehf. um framkvæmd verksins.
Theodóra Þorsteinsdóttir fulltrúi BF-Viðreisnar situr hjá.
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 1. júlí, lagðar fram niðurstöður útboðs í verkið "Vesturvör - Naustavör og Litlavör gatnagerð, lagnir og undirgöng. jarðvinna". Lagt er til að leitað verði samninga við Óskatak ehf. um framkvæmd verksins.
Bæjarráð samþykkir með 4 atkvæðum að ganga til samninga við lægstbjóðanda Óskatak ehf. um framkvæmd verksins.
Theodóra Þorsteinsdóttir fulltrúi BF-Viðreisnar situr hjá.
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 8. júlí, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að bjóða út vetrarþjónustu á göngu- og hjólaleiðum 2019-2022.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita heimild til útboðs á vetrarþjónustu göngu- og hjólaleiða 2019-2022.
Frá Sambandi Íslenskra Sveitarfélaga, dags. 26. júní, lögð fram yfirlýsing um samstarf sveitarfélaga um loftslagsmál og heimsmarkimið Sameinuðu Þjóðanna sem er send aðildarsveitarfélögum til afgreiðslu.
Lagt fram.
Frá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og Golfklúbbinum Oddi, dags. 1. júlí, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir fjárstuðningi við framkvæmd íslandsmóts Golfklúbba karla og kvenna sem haldið verður 26. - 28. júlí.
Bæjarráð hafnar erindinu með 3 atkvæðum Birkis Jóns Jónssonar, Karenar Halldórsdóttur og Hjördísar Ýrar Johnsson á móti 2 atkvæðum Theodóru Þorsteinsdóttur og Péturs Hrafns Sigurðssonar.
21
Hagasmári 1 og 3 (Silfursmári). Krafa um að Kópavogsbær afturkalli framkvæmdarleyfi á lóðunum
Frá Halldóri Jónssyni, lögmanni Juris, dags. 26. júní, lögð fram krafa um að Kópavogsbær afturkalli og endurskoði öll framkvæmdaleyfi á lóðum sem fela í sér skerðingu á réttindum Norðurturns hf.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til umsagnar.
Frá Eflingu stéttarfélagi, dags. 3. júlí, lagt fram erindi um stöðuna í kjaramálum félagsmanna sem starfa hjá Kópavogbæ þar sem farið er fram á eingreiðslu þann 1. ágúst nk. til þeirra sem starfa eftir samningi Eflingar.
Bæjarráð vísar málinu til starfsmannastjóra til umsagnar.
Frá hagsmunafélagi Smiðjuhverfis, dags. 4. júlí, lagt fram erindi þar sem tilkynnt er um að félagið hafi verið lagt niður.
Lagt fram.
Bæjarfulltrúar Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar leggja fram eftirfarandi bókun:
,,Hagsmunasamtök Smiðjuhverfis voru stofnuð í febrúar 2014 eftir gott samstarf við Markaðsstofu Kópavogs. Eftir það funduðu Hagsmunasamtökin reglulega með starfsfólki umhverfissviðs og kjörnum fulltrúum. Í samráði við samtökin hafa mörg mál verið rædd og sumt verið framkvæmt, m.a. átak í að hreinsa hverfið, almenn umferðarmál, lagning gangbrauta, götumerkingar, skerpt á lóðamörkum, rætt um uppsetningu hraðamyndavéla og að snjómokstur verði bættur svo dæmi séu tekin. Auk þess hefur verið vilji til þess að auka samvinnu við þróun skipulagsmála, stofnaður hefur verið bílastæðasjóður og gjaldtaka vegna gáma hafin. Almennt hefur verið gott upplýsingaflæði milli Hagsmunasamtakanna og Kópavogsbæjar um framvindu verkefna sem varðar hverfið. Smiðjuhverfið er skipulagt sem þróunarsvæði í aðalskipulagi og verður það áfram í þeirri endurskoðun á aðalskipulagi sem nú stendur yfir. Það er því einstakt tækifæri fyrir Kópavogsbæ að vinna með áhugasömum hagsmunaaðilum eins og þeim sem starfa í Smiðjuhverfi.
Það er ósk undirritaðra að meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokks haldi áfram því ágæta samráði og samstarfi sem Kópavogsbær hefur átt við Hagsmunasamtök Smiðjuhverfis síðustu ár og boði þau á samráðsfund hið fyrsta.
Theodóra Þorsteinsdóttir
Pétur Hrafn Sigurðsson
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir"
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar leggja fram eftirfarandi bókun:
,,Við hörmum ákvörðun stjórnar hagsmunasamtaka Smiðjuhverfis um að leggja samtökin niður. Það getur ekki þó verið á ábyrgð bæjarins, enda samtökin stofnuð til að gæta hagsmuna hverfisins m.a. gagnvart bænum. Kópavogsbær hefur frá stofnun samtakanna þann 5. febrúar 2014 átt í miklum samskiptum við stjórn þeirra og hefðu áframhaldandi samskipti verið báðum aðilum gagnleg ekki síst í ljósi breytinga á skipulagi svæðisins sem framundan eru.
Til áréttingar er bent á að frá stofnun samtakanna hefur Kópavogsbær unnið að ýmsum verkefnum í þeim tilgangi að koma til móts við óskir samtakanna og má þar nefna stofnun Bílastæðasjóðs, reglna um stöðuleyfi gáma, merkingar á lóðamörkum og hreinsunardaga. Síðasti fundur bæjarstjóra og starfsmanna umhverfissviðs með samtökunum var í desember síðastliðnum, þar sem fulltrúar samtakanna lögðu fram áhersluatriði þeirra.
Karen E Halldórsdóttir
Hjördís Ýr Johnson
Birkir Jón Jónsson"
Kosning formanns notendaráðs um málefni fatlaðs fólks.
Tilnefnd eru þau Guðmundur G. Geirdal og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir.
Guðmundur G. Geirdal hlýtur þrjú atkvæði og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir tvö atkvæði.
Guðmundur G. Geirdal er því rétt kjörinn formaður notendaráðs um málefni fatlaðs fólks.
Fundargerð í 47 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 2. liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 9 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 15 liðum.
Lagt fram.
Fundagerð í 7 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 2 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 7 liðum.
Lagt fram.