Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Gegn kynferðisofbeldi og áreiti

Málsnúmer: 1712718

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1169. fundur

02

Velferðarráð - 21. fundur

Lagt fram.Velferðarráð þakkar kærlega fyrir framlögð gögn og upplýsingar. Mikilvægt er að halda áfram eftirfylgni og umræðum um málið.

03

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 58. fundur

Jafnréttis- og mannréttindaráð fagnar umræðu bæjarstjórnar um kynferðislega áreitni og ofbeldi í kjölfar #metoo bylgjunnar.

Skýrt er kveðið á um í jafnréttis- og mannréttindastefnu bæjarins að kynferðisleg og kynbundin áreitni eða ofbeldi er ekki liðið. Mikilvægt er að halda umræðunni áfram á lofti og til staðar er viðbragðsáætlun ef slík mál koma upp.

04

Bæjarstjórn - 1167. fundur

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, óskaði eftir að tekið yrði til umræðu kynferðisofbeldi og áreiti og hvernig koma megi í veg fyrir slíkt athæfi á vettvangi stjórnmála og á vinnustöðum sveitarfélaga.

Hlé var gert á fundi kl. 17.05. Fundi var fram haldið kl. 17.10.

Bæjarstjórn samþykkti með 11 atkvæðum eftirfarandi ályktun:

Bæjarstjórn Kópavogs lýsir yfir ánægju með það frumkvæði sem konur í stjórnmálum landsins hafa tekið undir merkjum "Í skugga valdsins". Kópavogsbær hefur í stefnum um einelti og í jafnréttis- og mannréttindamálum bæjarins sett fram skýra sýn í þessum efnum og er með viðbragðsáætlanir skrifaðar inn í stefnurnar og í gæðakerfi bæjarins. Þar kemur skýrt fram að; kynferðisleg áreitni er ekki undir nokkrum kringumstæðum liðin hjá bænum. Bæjarstjórn hefur það hlutverk að hafa frumkvæði í umræðunni um leið og stefnur og áætlanir bæjarins eru í sífelldri endurskoðun.