Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Merkingar á íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar

Málsnúmer: 1712873

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 93. fundur

Lögð fram til kynningar, tillaga að samræmdum merkingum íþróttamannvirkja í Kópavogi sem unnin hefur verið í samstarfi Umhverfis- og menntasviðs fyrr á þessu ári.

Lagt fram til kynningar.

02

Bæjarráð - 2918. fundur

Frá deildarstjóra íþróttadeildar, dags. 28. maí, lögð fram umsögn menntasviðs/íþróttadeildar á stöðu vinnu er lýtur að merkingum íþróttamannvirkja.

Lagt fram.

03

Bæjarráð - 2915. fundur

Frá Theódóru Þorsteinsdóttur, formanni bæjarráðs, ósk um að bæjarráð taki að nýju fyrir tillögu íþróttaráðs um utanhúss merkingar íþróttamannvirkja Kópavogsbæjar og auglýsingar í þeim, en bæjarráð vísaði tillögum um auglýsingar í mannvirkjun til úrvinnslu samráðsvettvangs íþróttafélaganna á fundi sínum þann 1. mars sl.

Bæjarráð óskar eftir umsögn um stöðu vinnu er lýtur að merkingum íþróttamannvirkja.

04

Bæjarráð - 2905. fundur

Jón Júlíusson, deildarstjóri íþróttadeildar, kynnir tillögu íþróttaráðs varðandi utanhúss merkingar íþróttamannvirkja Kópavogsbæjar.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögur um utanhúss merkingar en vísar erindi Breiðabliks um auglýsingar í mannvirkjum til samráðsvettvangs íþróttafélaganna til úrvinnslu.

05

Bæjarráð - 2903. fundur

Tekið til afgreiðslu erindi frá Aðalstjórn Breiðabliks dags. 11. des. 2017, sem frestað var á síðasta fundi ráðsins. Þar óskar félagið eftir því að íþróttamannvirki sem eru í eigu og "rekstri bæjarins og notuð af félögunum verði merkt Breiðablik til jafns við önnur íþróttafélög í bænum sbr. íþróttahúsið í Digranesi og íþróttahúsið í Fagralundi". Að auki óskar Breiðablik eftir því að selja auglýsingar í umrædd hús til jafns við önnur íþróttafélög í bænum."

06

Bæjarráð frestar afgreiðslu tillögunnar og óskar eftir kynningu íþróttadeildar á tillögunni.

07

Íþróttaráð - 80. fundur

Tekið til afgreiðslu erindi frá Aðalstjórn Breiðabliks dags. 11. des. 2017, sem frestað var á síðasta fundi ráðsins. Þar óskar félagið eftir því að íþróttamannvirki sem eru í eigu og "rekstri bæjarins og notuð af félögunum verði merkt Breiðablik til jafns við önnur íþróttafélög í bænum sbr. íþróttahúsið í Digranesi og íþróttahúsið í Fagralundi". Að auki óskar Breiðablik eftir því að selja auglýsingar í umrædd hús til jafns við önnur íþróttafélög í bænum."

Íþróttaráð samþykkir eftirfarandi;

Íþróttaráð leggur til við bæjarráð að íþróttamannvirki Kópavogsbæjar verði merkt með eftirfarandi hætti;

1. Íþróttamannvirki Kópavogsbæjar sem rekin eru af íþróttafélögum í Kópavogi með rekstrarsamningi þar um, skulu öll merkt Kópavogsbæ með merki bæjarins að ákveðinni stærð (cm x cm), í samráði við hönnuði mannvirkjanna. Viðkomandi íþróttafélagi (Breiðablik, Gerpla og HK) verði heimilt að setja upp félagsmerki sitt á mannvirkið í sömu stærð í samráði við Kópavogsbæ.

2. Íþróttamannvirki Kópavogsbæjar, sem rekin eru af Kópavogsbæ verði einungis merkt með merki Kópavogsbæjar sbr. 1. tl. hér að ofan. Á þetta við öll íþróttamannvirki bæjarins í dag að íþróttahúsinu Digranesi undanskildu þar til áhorfendaaðstöðu hefur verið komið upp í íþróttamiðstöðinni Kórnum.

3. Menntasviði og Umhverfissviði verði falið að vinna tillögur að reglum um stærð og staðsetningu ofangreindra merkinga á mannvirkjunum Kópavogsbæjar í samráði við íþróttafélögin sem lagðar verði fyrir íþróttaráð og bæjarráð til endanlegrar afgreiðslu.

Jafnframt samþykkir íþróttaráð eftirfarandi bókun um auglýsingar:

"Breiðablik hefur óskað eftir því við íþróttaráð að fá heimild til að selja auglýsingar í íþróttamannvirki í rekstri bæjarins sem ekki gilda sérstakir rekstrarsamningar um. Innan íþróttadeildar hjá Kópavogsbæ er nú í gangi vinna við að semja almennar reglur um auglýsingar í öllum íþróttamannvirkjum í eigu Kópavogsbæjar með aðkomu viðkomandi hagaðila. Meðan sú vinna er í gangi gerir íþróttaráð ekki athugasemd við það að Breiðablik eða önnur íþróttafélög reyni að afla sér tekna með sölu tímabundinna auglýsinga sem settar verða upp í tilgreindum mannvirkjum svo fremi sem fullt samráð sé haft við íþróttadeild Kópavogsbæjar um alla framkvæmd málsins og að tekið verði tillit til þeirra auglýsinga sem nú þegar eru til staðar."

08

Íþróttaráð - 78. fundur

Lagt fram erindi frá Aðalstjórn Breiðabliks dags. 11. des. 2017, þar sem félagið óskar eftir því að íþróttamannvirki sem eru í eigu og "rekstri bæjarins og notuð af félögunum verði merkt Breiðablik til jafns við önnu íþróttafélög í bænum sbr. íþróttahúsið í Digranesi og íþróttahúsið í Fagralundi"

Að auki óskar Breiðablik eftir því að selja auglýsingar í umrædd hús til jafns við önnur íþróttafélög í bænum."

Málinu frestað