Menntasvið-eftirlit og gæði mötuneyta
Málsnúmer: 1712893
Ferill máls
01
Leikskólanefnd - 141. fundur
Niðurstöður gæðaúttektar á mötuneytum leikskóla lagðar fram.
Lagt fram.
02
Menntaráð - 96. fundur
Niðurstöður gæðaúttektar á mötuneytum grunnskóla lagðar fram.
Lagt fram.
03
Menntaráð - 36. fundur
Kynning á eftirfylgni á niðurstöðum úttektar á mötuneytum sem fram fór í skólum bæjarins 2018.
Ragnheiður Hermannsdóttir, deildarstjóri grunnskóladeildar, kynnti námskeið sem haldin voru fyrir starfsfólk mötuneyta leik- og grunnskóla, í nóvember 2018 til eftirfylgni með úttekt á mötuneytum grunnskóla bæjarins, sem fram fór vorið 2018. Menntaráð lýsir ánægju sinni með framkvæmd og eftirfylgni úttektar.
04
Menntaráð - 25. fundur
Kynning á framkvæmd og niðurstöðum á eftirliti Kópvogsbæjar á mötuneytum í skólum.
Niðurstöður úttektar lagðar fram og menntaráð óskar eftir að fylgjast með eftirfylgni úttektar.
05
Leikskólanefnd - 93. fundur
Kynning á niðurstöðum gæðaúttekta í eldhúsum leikskóla Kópavogs.
Sviðsstjóri menntasviðs kynnti niðurstöður gæðaúttekta í eldhúsum leikskóla Kópavogs sem fram fór í janúar og febrúar.