Löggæsla í Kópavogi. Beiðni um umræðu í bæjarráði frá Birki Jóni Jónssyni
Málsnúmer: 1801568
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2901. fundur
Fulltrúar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu mættu til fundarins vegna beiðni bæjarráðs um að fara yfir löggæslu í bæjarfélaginu, aukna tíðni innbrota og sýnileika lögreglunnar.
Hlé var gert á fundi kl. 8:05. Fundi var fram haldið kl. 9:00.
Bæjarráð lýsir áhyggjum yfir því að einungis tveir lögreglubílar sinni almennri löggæslu í Kópavogi og Breiðholti þar sem íbúar eru tæplega 60.000. Fjármagn hefur ekki fylgt aukningu verkefna og fjölgun íbúa. Bæjarráð óskar eftir viðræðum við dómsmálaráðuneyti um stöðu löggæslumála í Kópavogi.
02
Bæjarráð - 2900. fundur
Beiðni frá Birki Jóni Jónssyni um umræðu um löggæslu í Kópavogi.
"Ég óska eftir því að fulltrúar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu komi á næsta fund bæjarráðs til þess að fara yfir löggæslu í bæjarfélaginu. Aukin tíðni innbrota og sýnileiki lögreglunnar vil ég ræða í því samhengi."
Bæjarráð óskar eftir því að fulltrúar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu mæti á næsta fund bæjarráðs.