Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Samstarf íþróttafélaga í Kópavogi og Kópavogsbæjar um almennar íþróttir fyrir 1.- 3. bekk grunnskóla. Tillaga frá Margréti Júlíu Rafnsdóttur

Málsnúmer: 1802287

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2905. fundur

Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 27. febrúar, lögð fram umsögn varðandi tillögu um samstarf íþróttafélaga í Kópavogi og Kópavogsbæjar um almennar íþróttir fyrir 1. - 3. bekk grunnskóla.

Margrét Júlía Rafnsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

"Ég þakka greinargott svar frá sviðstjóra mennasviðs. Það er ánægjulegt að hefja eigi tilraunaverkefni í haust í tveimur skólahverfum þar sem markmið verkefnisins er að bjóða á upp á íþróttaskóla eða íþróttatilboð fyrir yngstu börn grunnskólans í íþróttahúsi viðkomandi skólahverfis þar sem lögð er áhersla á að kynna fjölbreyttar íþróttagreinar. Ég tek undir með sviðsstjóra menntasviðs um mikilvægi þess að fagmenntaðir þjálfarar stýri æfingunum, þannig að börnin upplifi að þau séu að stunda íþróttir hjá íþróttafélagi.

Margrét Júlía Rafnsdóttir"

02

Bæjarráð - 2903. fundur

Frá Margréti Júlíu Rafnsdóttur, bæjarfulltrúa, lögð fram tillaga um samstarf íþróttafélaga í Kópavogi og Kópavogsbæjar um almennar íþróttir fyrir 1.-3. bekk grunnskóla, sem væri hluti af dægradvöl í hverjum grunnskóla.

Bæjarráð vísar tillögunni til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs.