Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Arnarsmári 36/Nónhæð - samkomulag um uppbyggingu á svæðinu

Málsnúmer: 18031085

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1176. fundur

Frá lögfræðideild, lagður fram viðauki við samkomulag Kópavogsbæjar og Nónhæðar um uppbyggingu lóðarinnar Arnarsmára.

Bæjarstjórn samþykkir viðauka við samkomulag Kópavogsbæjar og Nónhæðar með átta atkvæðum þeirra Margrétar Friðriksdóttur, Sverris Óskarssonar, Theódóru Þorsteinsdóttur, Hjördísar Johnson, Guðmundar Geirdal og Kristins Dags Gissurarsonar en Jón Finnbogason, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Pétur Hrafn Sigurðsson og Kristín Sævarsdóttir greiddu ekki atkvæði.

02

Bæjarráð - 2913. fundur

Frá lögfræðideild, lagður fram viðauki við samkomulag Kópavogsbæjar og Nónhæðar um uppbyggingu lóðarinnar Arnarsmára.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

03

Bæjarstjórn - 1174. fundur

Frá lögfræðideild, lögð fram drög að samkomulagi um lóðina Arnarsmára 36 vegna uppbyggingu á Nónhæð. Bæjarráð frestaði afgreiðslu erindisins á fundi sínum 22. mars sl.

Bæjarstjórn samþykkir samkomulag um lóðina Arnarsmára 36 vegna uppbyggingar á Nónhæð með níu samhljóða atkvæðum. Pétur Hrafn Sigurðsson og Ása Richardsdóttir greiddu ekki atkvæði.

04

Bæjarráð - 2909. fundur

Frá lögfræðideild, lögð fram drög að samkomulagi um lóðina Arnarsmára 36 vegna uppbyggingu á Nónhæð. Bæjarráð frestaði afgreiðslu erindisins á fundi sínum 22. mars sl.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

05

Bæjarráð - 2908. fundur

Frá lögfræðideild, lögð fram drög að samkomulagi um lóðina Arnarsmára 36 vegna uppbyggingu á Nónhæð.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.