Bæjarráð - 2909. fundur
á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalfulltrúi
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
- Birkir Jón Jónsson - aðalfulltrúi
- Margrét Júlía Rafnsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Salvör Þórisdóttir - lögfræðingur
Starfsmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Elísabet Jónína Þórisdóttir - starfsmaður nefndar
Ritari
- Elisabet Þórisdóttir
Dagskrá fundar
Frá deildarstjóra framkvæmdardeildar, dags. 3. apríl, lagt fram erindi um niðurstöður útboðs varðandi yfirborðsfrágang gatna við Glaðheima.
Samþykkt.
Frá deildarstjóra grunnskóladeildar, dags. 3. apríl, lagt fram erindi er varðar byggingu nýs Kársnesskóla.
Jafnframt eru lög fram þrjú fylgiskjöl : "Forsögn: Kársnesskóli - nýtt skólahúsnæði við Skólagerði", "Nýbygging - útboð á hönnun" og "Niðurrif á húsnæði Kársnesskóla við Skólagerði".
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Frá lögfræðideild, lögð fram drög að samkomulagi um lóðina Arnarsmára 36 vegna uppbyggingu á Nónhæð. Bæjarráð frestaði afgreiðslu erindisins á fundi sínum 22. mars sl.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Frá lögfræðideild, dags. 28. mars, lögð fram umsögn um undanþágu frá kvöð vegna sölu á Vogatungu 35.
Samþykkt.
05
Brekkuhvarf 1-7. Mótmæli við fyrirhugaðri breytingu á skipulagi frá íbúum við Brekkuhvarf og Breiðahvarf
Frá 13 íbúum við Brekkuhvarf og Breiðahvarf, lagt fram undirritað mótmælabréf ásamt skýringum vegna breyingu á skipulagi að Brekkuhvarfi 1-7.
Jafnframt er lögð fram greiðagerð vegna mótmæla ásamt myndum af Brekkuhvarfi 1 og 3.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til skipulagsráðs.
Frá Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 27. mars, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um jafna meðferð á vinnumarkaði, 394. mál (stjórnarfrumvarp).
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns.
Frá Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 27. mars, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um lögheimili og aðsetur, 345. mál (stjórnarfrumvarp).
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns.
Karen Elísabet Halldórsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:
"Það er gott og vel að hjón skulu ekki lengur þurfa að hafa sama lögheimili en að sama skapi vil ég hvetja Alþingi að sýna börnum og réttindum foreldra sem ekki eru í sambúð eða gift sama skilning. Við sambúðarslit eða skilnað geta börn bara átt eitt lögheimili og réttindi sem því fylgja. Þetta er brot á réttindum barna sem og foreldra og um leið gerir annað foreldrið rétthærra en hitt."
Karen Elísabet Halldórsdóttir.
Hjördís Ýr Johnson, Margrét Júlía Rafnsdóttir, Pétur Hrafn Sigurðsson, Ármann Kr. Ólafsson og Birkir Jón Jónsson taka undir bókunina.
08
Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði samgöngu-, fjarskipta-, sveitarstjórnar- og byggðamála, 389. mál. Umsagnarbeiðni
Frá Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 22. mars, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum á sviði samgöngu-, fjarskipta- sveitarstjórnar- og byggðamála, 389. mál (stjórnarfrumvarp).
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns.
Frá Umboðsmanni Alþingis, dags. 15. mars, lögð fram beiðni um upplýsingar og skýringar varðandi kvörtun vegna mats á starfsréttindum.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns.
Frá Umboðsmanni Alþingis, dags. 19. mars, lögð fram beiðni um upplýsingar og gögn um ráðningar opinberra starfsmanna.
Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns.
Fundargerð í 3 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 7 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 7 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.
Margrét Júlía Rafnsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun við lið 1 í fundargerð menntaráðs:
"Tek undir bókun Gisla Baldvinssonar hvað varðar umsókn Arnarskóla. Í gögnum er ekki að finna neina umsögn frá menntasviði um umræddan skóla. Samkvæmt grunnskólalögum á Kópavogsbær að vera eftirlitsaðili með skólanum. Ógerlegt er taka jákvæða afstöðu til umsóknarinnar á grundvelli gagna."
Fundargerð í 9 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 75 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 4 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 6 liðum.
Jafnframt er lagt fram eitt fylgiskjal : Mælaborð Strætó janúar til febrúar 2018.
Lagt fram.
Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.
21
Óskað eftir upplýsingum um starf starfshóps um Samgöngustefnu Kópavogsbæjar. Fyrirspurn frá Pétri Hrafni Sigurðssyni
Frá Pétri Hrafni Sigurðssyni :
"Undirritaður óskar eftir upplýsingum um starf starfshóps um Samgöngustefnu Kópavogsbæjar sem skipaður var í vor á síðasta ári. Eftir að starfshópurinn hélt íbúafundi um Samgöngustefnu sl. vetur hefur starfshópurinn ekki komið saman og þar af leiðir hefur starfshópurinn ekki farið yfir þær tillögur og ábendingar sem fram komu frá íbúum Kópavogsbæjar. "
Vísað til umsagnar umhverfissviðs.