Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Kópavogsbær bjóði öllum börnum í grunnskólum bæjarins í leikhús/tónleika/listsýningu á hverju ári. Tillaga til menntaráðs frá Pétri Hrafni Sigurðssyni

Málsnúmer: 1809331

Ferill máls

01

Menntaráð - 30. fundur

Tillaga lögð fram.

Soffía Karlsdóttir, forstöðumaður menningarmála kynnti framboð menningahúsanna til grunnskólabarna.

Menntaráð lýsir ánægju sinni yfir metnaðarfullri dagskrá menningarhúsanna. Ráðið vill efla samstarf menningarhúsa og grunnskóla. Jafnframt er starfsfólk grunnskólanna hvatt til að beita sér fyrir því að nemendur sæki viðburði menningarhúsanna.

Björg Baldursdóttir vék af fundi kl 18:30.

Helgi Magnússon leggur fram eftirfarandi breytingartillögu:

Menntaráð mælist til þess að grunnskólar Kópavogs kynni sér þá menningarþjónustu sem í boði er hjá menningarstofnunum bæjarins með það að markmiði að öll börn fái tækifæri til að kynnast fjölbreyttri menningu.

Tillagan samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.