Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Óskað eftir viðræðum við Kópavogsbæ varðandi samstarf um uppbyggingu almennra íbúða

Málsnúmer: 1810184

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2933. fundur

Frá Bjargi íbúðafélagi, dags. 2. október, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir viðræðum við Kópavogsbæ um lóð og stofnframlag vegna byggingar almennra íbúða í sveitarfélaginu. Björn Traustason framkvæmdastjóri félagsins mætti á síðasta fund ráðsins þann 1. nóvember sl. og kynnti erindið.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarstjóra til úrvinnslu.

02

Bæjarráð - 2932. fundur

Að beiðni bæjarráðs mætir Björn Traustason framkvæmdastjóri hjá Bjargi íbúðafélagi á fund ráðsins til að kynna betur erindi sem félagið sendi og var tekið fyrir á síðasta fundi bæjarráðs þar sem óskað var eftir viðræðum við Kópavogsbæ um lóð og stofnframlag vegna byggingar almennra íbúða í sveitarfélaginu.

Lagt fram.

03

Bæjarráð - 2929. fundur

Frá Bjargi íbúðafélagi, dags. 2. október, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir viðræðum við Kópavogsbæ um lóð og stofnframlag vegna byggingar almennra íbúða í sveitarfélaginu.

Bæjarráð óskar eftir að fulltrúar Bjargs mæti á fund ráðsins og kynni erindið.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:

"Píratar fagna erindi Bjargs íbúðafélags varðandi samstarf um uppbyggingu almennra íbúða. Það er brýn þörf fyrir íbúðir af þessu tagi og nauðsynlegt að öll sveitarfélög leggi sitt af mörkum."